
Einelti meðal yngstu grunnskólanemendanna hefur aukist ár frá ári frá 2023 og helmingur stúlkna í 10. bekk finnur fyrir að minnsta kosti 2 einkennum andlegrar vanlíðanar oftar en einu sinni í viku. Þetta kemur fram í niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026.
Rannsóknin var lögð fyrir nemendur í 4.–10. bekk í grunnskólum landsins vorið 2026. Alls tóku 23.881 nemendur úr 153 grunnskólum þátt og var heildarsvarhlutfallið 71,7%.
Niðurstöðurnar sýna jákvæða þróun á mörgum sviðum. Fleiri nemendum líður vel í skólanum, lífsánægja hefur aukist og færri finna fyrir tíðri andlegri vanlíðan.
Á sama tíma vekur þróun eineltis, einmanaleika og vímuefnanotkunar meðal ákveðinna hópa athygli.
Einelti aukist úr 18% í 22%
Einelti er sá þáttur rannsóknarinnar sem hefur þróast hvað verst undanfarin ár.
Árið 2023 sögðust 18% nemenda í 4. og 5. bekk hafa orðið fyrir einelti. Hlutfallið hefur hækkað á hverju ári síðan og mælist nú 22%.
Sambærileg merki sjást meðal nemenda í 6. og 7. bekk og vísbendingar eru um svipaða þróun á unglingastigi.
Á sama tíma hefur dregið úr ýmsum öðrum tegundum ofbeldis meðal nemenda í 8.–10. bekk, þar á meðal heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og áreiti, slagsmálum og líkamsárásum.
Flestir nemendur segjast jafnframt upplifa mikið öryggi heima og í nærumhverfi sínu. Helmingur stúlkna í 10. bekk finnur fyrir tíðri vanlíðan
Andleg líðan nemenda hefur almennt batnað.
Hlutfall nemenda í 6.–10. bekk sem meta líf sitt gott hefur hækkað úr 57% árið 2023 í 62% í ár.
Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem finna fyrir tíðri andlegri vanlíðan lækkað úr 37% í 32%.
Mikill munur er þó áfram á líðan stúlkna og drengja.
Helmingur stúlkna í 10. bekk segist finna fyrir að minnsta kosti 2 einkennum andlegrar vanlíðanar, svo sem kvíða, depurð, pirringi eða svefnerfiðleikum, oftar en einu sinni í viku.
Um 15% nemenda í 10. bekk hafa jafnframt skaðað sig. Heildarhlutfallið virðist fara hægt lækkandi en engin lækkun mælist meðal stúlkna.
Einmanaleiki eykst meðal eldri nemenda
Nær allir nemendur segjast eiga að minnsta kosti einn góðan vin.
Hlutfallið er 98% meðal nemenda í 6.–10. bekk og 99% meðal nemenda í 4. og 5. bekk.
Þrátt fyrir það segjast 11% nemenda í 6.–10. bekk oft vera einmana. Einmanaleiki hafði farið minnkandi frá árinu 2022 en frá 2024 hafa komið fram merki um að sú þróun hafi snúist við meðal nemenda í 8.–10. bekk.
Þróunin er sérstaklega áberandi meðal stúlkna. Hlutfall þeirra sem upplifa einmanaleika hefur hækkað úr 14,7% í 17,1%. Meðal drengja hefur hlutfallið farið úr 7,3% í 8,2%.
Sígarettureykingar tvöfaldast meðal nemenda í 10. bekk
Vímuefnaneysla meðal nemenda í 9. og 10. bekk hefur almennt farið minnkandi undanfarin ár. Hlutfall nemenda í 10. bekk sem höfðu drukkið áfengi síðustu 30 daga lækkaði úr 13,4% árið 2022 í 9,1% í ár. Rafrettunotkun minnkaði úr 14% í 10% á sama tímabili.
Önnur þróun sést hins vegar í sígarettureykingum.
Árið 2024 reyktu 2,3% nemenda í 10. bekk sígarettur en hlutfallið mælist nú 4,6%. Það hefur því tvöfaldast á tveimur árum. Hlutfall nemenda í 10. bekk sem hafa prófað kannabis hefur jafnframt hækkað úr 5,7% í 6,5%. Aukningin virðist einkum vera meðal drengja.
Fleiri líður vel í skólanum
Viðhorf nemenda til skólans hafa batnað undanfarin ár.
Árið 2024 sögðust 86% nemenda líða vel í kennslustundum en hlutfallið er nú 89%. Alls segjast 85% kunna vel við sig í skólanum.
Færri nemendur eru einnig oft þreyttir í skólanum. Hlutfallið hefur lækkað úr 36% árið 2023 í 30% í ár og jafnframt hefur dregið úr skrópi. Fleiri nemendur upplifa einnig að tekið sé mark á hugmyndum þeirra og að þeir geti leitað til fullorðins einstaklings í skólanum.
9 af hverjum 10 finna fyrir stuðningi fjölskyldunnar
Flestir nemendur upplifa góðan stuðning heima.
Níu af hverjum tíu nemendum í 6.–10. bekk telja sig njóta góðs stuðnings fjölskyldunnar.
Alls segjast 84% geta fengið aðstoð við heimanám, samanborið við 80% árið 2023.
Vísbendingar eru þó um að færri eldri nemendur en áður telji sig eiga auðvelt með að tala við að minnsta kosti annað foreldri sitt.
Heildarniðurstöður rannsóknarinnar sýna því batnandi líðan á ýmsum sviðum og jákvæðari upplifun nemenda af skólanum. Á móti standa einkum aukið einelti meðal yngri barna, vaxandi einmanaleiki meðal eldri nemenda, mikil vanlíðan meðal hluta stúlkna og merki um auknar sígarettureykingar og kannabisnotkun meðal nemenda í 10. bekk.
