
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Eirík S. Svavarsson, hæstaréttarlögmann og varaþingmann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu í dag, um stjórnskipuleg áhrif bókunar 35. Eiríkur sagði að yrði bókunin lögfest sem forgangsregla færi það að hans mati yfir rauða strikið í stjórnarskránni. Rétta leiðin væri þá að breyta stjórnarskránni áður en slík forgangsregla yrði tekin upp. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
EES-regla fengi forgang fram yfir lög Alþingis
Eiríkur útskýrði að grunninntak frumvarpsins væri að ef íslensk lagaregla sem Alþingi hefði sett, rækist á réttilega innleidda EES-reglu, ætti EES-reglan að hafa forgang.
Þar væri um verulega breytingu að ræða frá þeirri leið sem Ísland valdi þegar EES-samningurinn var lögfestur. Bókun 35 hefði þá verið innleidd sem túlkunarregla en ekki almenn forgangsregla.
Að hans sögn var sú leið farin meðvitað vegna íslensku stjórnarskrárinnar. Alþingi færi með óskorað lagasetningarvald og stjórnarskráin hefði ekki að geyma sérstaka heimild til að framselja hluta þess valds til yfirþjóðlegra aðila.
Önnur stjórnskipuleg staða í Noregi
Arnþrúður vakti athygli á því að Norðmenn hefðu innleitt bókun 35 sem forgangsreglu og því hefði verið vísað til þess í umræðunni hér á landi.
Eiríkur sagði mikilvægan mun vera á ríkjunum. Í norsku stjórnarskránni væri stjórnskipulegur grundvöllur fyrir slíku framsali valds en sú heimild væri ekki til staðar með sama hætti í íslensku stjórnarskránni.
Þess vegna hefðu íslensk stjórnvöld farið aðra leið við upphaf EES-samstarfsins og gert bókun 35 að túlkunarreglu.
Þingmenn bundnir drengskaparheitinu
Eiríkur lagði sérstaka áherslu á skyldur alþingismanna gagnvart stjórnarskránni. Þingmenn undirrituðu drengskaparheit um að fylgja henni og sú skylda væri óháð því hvort viðkomandi væri fylgjandi eða andvígur Evrópusambandinu.
Ef Alþingi samþykkti bókun 35 með þeim forgangsáhrifum sem frumvarpið gerði ráð fyrir væru þingmenn, að hans mati, að gefa sjálfum sér afslátt af þeirri skyldu.
Hann vísaði jafnframt til skrifa Markúsar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi forseta Hæstaréttar og sagði að Markús hefði skrifað að stjórnarskráin geymdi ekki heimild til að lögleiða slíka forgangsreglu óbreytta.
Stjórnarskrárbreyting verði að koma fyrst
Ef meirihluti Alþingis vildi engu að síður innleiða forgangsáhrif bókunar 35 væri rétti farvegurinn að mati Eiríks að breyta stjórnarskránni fyrst.
Slík breyting krefðist tveggja þinga með kosningum á milli og þar með aðkomu íslensku þjóðarinnar.
Hann sagði stöðugt vera stigið inn á svið stjórnarskrárinnar með auknum EES-skuldbindingum. Þess vegna væri mikilvægt að fá skýra niðurstöðu um mörkin áður en gengið væri lengra með frumvarpið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
