Eldgosinu við Sundhnjúksgíga lokið

Eldgosinu sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí er lokið, en engin virkni hefur sést í gígnum frá 22. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Gosið stóð yfir í 24 daga og var fimmta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni síðan í desember 2023. Jafnframt er hraunbreiðan sem myndaðist sú stærsta að rúmmáli og flatarmáli.

Í tilkynningunni segir að þrátt fyrir að ekkert hraun renni frá gígnum séu áfram töluverðar hreyfingar í hraunbreiðunni norðan Sýlingarfells vegna þess að enn er fljótandi hraun undir storknuðu yfirborðinu. Síðustu tvo sólarhringa hefur verið virkni í þeim hrauntungum sem fóru yfir varnargarð við Sýlingarfell og einnig í hraunbreiðunni norðan varnargarðsins. Áfram má búast við því að hreyfinga verði vart í hraunbreiðunni á næstu dögum þar sem það tekur töluverðan tíma fyrir þetta ferli að stöðvast.

Um það bil tíu dögum eftir að eldgosið hófst byrjaði landris í Svartsengi að mælast aftur sem bendir til þess að kvikusöfnun þar haldi áfram. Landrisið hefur verið stöðugt síðan þá en er nú hægara en það var á milli síðustu atburða.  Veðurstofan heldur áfram að vakta svæðið og mælingar næstu daga og vikur munu hjálpa til við að túlka mögulega þróun jarðhræringanna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila