
Tillögur um mat og flokkun á virkjunarkostunum úr 3. áfanga rammaáætlunar hafa verið endurmetnar og settar í samráðsgátt stjórnvalda.
Við afgreiðslu á 3. áfanga rammaáætlunar gerði Alþingi breytingar á tillögu um röðun nokkurra virkjunarkosta og óskaði eftir að tiltekin atriði í mati verkefnisstjórnar væru skoðuð nánar. Breytingar Alþingis voru að færa virkjunarkostina Héraðsvötn og Kjalöldu úr verndarflokki í biðflokk og Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun og Skrokkölduvirkjun úr nýtingarflokki í biðflokk.
Tilmæli Alþingis voru sett fram í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar og tilgreind þau atriðið sem ráðherra er falið að láta skoða nánar. Í framhaldi af afgreiðslu nefndarinnar fékk verkefnisstjórn minnisblað frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu dags. 12. september 2022 þar sem verkefnisstjórn er falið það að vinna endurmat á þessum virkjunarkostum. Þar er því jafnframt beint sérstaklega til verkefnisstjórnar, að miða umfjöllun um áður nefnda virkjunarkosti við það sem fram kemur í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar frá 10. júní sl. (þingskjal 1210, 332. mál á 152. löggjafarþingi).
Verkefnisstjórn yfirfór þessi tilmæli og fól viðkomandi faghópum að vinna greiningar á þeim atriðum sem koma fram og óskað er eftir í nefndarálitinu fyrir hvern virkjunarkost. Þær greiningar liggja nú fyrir.
Verkefnisstjórn hefur fengið kynningar á og farið yfir niðurstöður úr vinnu faghópanna og metið í samhengi við greiningar á öðrum þáttum fyrir viðkomandi virkjunarkosti. Á þeim grunni gerir verkefnisstjórn tillögur til ráðherra að röðun þessara virkjunarkosta og eru þær tillögur hér settar fram í opna, almenna umsögn.
Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnastjórnar stóð í 2 vikur, eða frá 4. desember til 18. desember.
Þetta er seinna umsagnarferlið um tillögur verkefnisstjórnar, sem gert er ráð fyrir að taki tólf vikur.
Skoða nánar með þvi að smella á hlekkinn hér að neðan
Smelltu hér til að skoða málið nánar/senda inn umsögn.
