Engar varanlegar undanþágur í boði fyrir Ísland

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í síðdegisútvarpinu um möguleika Íslands á undanþágum frá reglum Evrópusambandsins í sjávarútvegi og landbúnaði. Sigmundur sagði varanlegar undanþágur ekki veittar nýjum aðildarríkjum og það sem kynnt væri sem undanþága reyndist yfirleitt tímabundinn aðlögunarfrestur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Aðlögunarfrestir ekki varanlegar undanþágur

Aðspurður hvort fordæmi væru fyrir varanlegum undanþágum nýrra aðildarríkja svaraði Sigmundur því neitandi. Hann sagði ESB hafa horfið frá slíkum undanþágum í tengslum við stækkun sambandsins árið 2004.

Ríki gætu fengið tímabundinn frest til að innleiða tilteknar reglur en slíkt fæli ekki í sér varanlega sérstöðu. Aðlögunarfrestur þýddi aðeins að ríkið fengi lengri tíma til að breyta lögum sínum og laga sig að regluverki sambandsins.

Stuðningur við landbúnað háður skilyrðum

Þegar talið barst að heimildum Finnlands og Svíþjóðar til að styðja landbúnað á norðlægum svæðum sagði Sigmundur þær tengjast sérstökum aðstæðum á strjálbýlum norðurslóðum. Fyrirkomulagið væri meðal annars hugsað til að styðja hreindýrahald Sama.

Sigmundur sagði löndin geta stutt eigin landbúnað að ákveðnu marki en heimildirnar væru háðar skilyrðum og gætu breyst. Hann sagði landbúnað í Finnlandi og Svíþjóð hafa átt erfitt uppdráttar þrátt fyrir stuðninginn.

Önnur ríki myndu verja eigin sjávarútveg

Um mögulega undanþágu Íslands í sjávarútvegi benti Arnþrúður á hagsmuni Íra, Portúgala, Spánverja og annarra sjávarútvegsþjóða innan ESB. Sigmundur sagði þessi ríki myndu ekki sætta sig við að Ísland fengi varanleg réttindi sem þeim stæðu ekki til boða. Þau hefðu sjálf mikla hagsmuni af sjávarútvegi og myndu þrýsta á um breytingar.

Hann sagði þó stærsta málið ekki snúast um einstakar undanþágur. Jafnvel þótt Ísland fengi tímabundið svigrúm í sjávarútvegi eða landbúnaði stæði eftir framsal valds á sviði löggjafar, framkvæmdar og dómsmála.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila