Engar varphænur lengur í búrum á Íslandi

Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem stofnunin lýsir því formlega yfir að varphænsnahald í búrum á Íslandi hafi nú runnið sitt skeið.

Með gildistöku reglugerðar um velferð alifugla árið 2015 var eggjabændum gefinn sjö ára frestur, til loka árs 2021, til að breyta varphúsum með hefðbundnum búrum í varphús með innréttuðum búrum eða í lausagönguhús. Á þeim tíma voru um 72% varphænsna landsins haldin í hefðbundnum búrum. Frestur til að hætta notkun á þeim var tvívegis framlengdur en ákvæðið tók endanlega gildi þann 1. júlí 2023.

Á þeim rúmlega átta árum hættu nokkrir eggjabændur framleiðslu í stað þess að breyta húsunum, aðrir breyttu varphúsum í lausagönguhús. Enginn eggjabóndi ákvað að taka í notkun innréttuð búr. Í eftirlitsátaki haustið 2023 gekk Matvælastofnun úr skugga um að á öllum eggjabúum væri notkun á hefðbundnum búrum hætt. Á tveimur stöðum þurfti Matvælastofnun að gera kröfur um úrbætur þar sem í ljós kom að hænur voru enn í búrum. Báðir aðilar brugðust við og síðustu hænur voru fjarlægðar í desember sl. án þess að grípa þyrfti til þvingunaraðgerða.

„Allar varphænur landsins hafa núna kost á að geta krafsað og sandbaðað sig í undirburði í lausagönguhúsum, þær geta orpið í varpkössum, hvílt sig á setprikum í öruggri hæð frá meintum rándýrum eins og þeim er eðlilegt og síðast en ekki síst hafa þær möguleika á að hreyfa sig um varphúsið. Með þessu skrefi hefur mikið áunnist í bættri velferð varphænsna.“ segir í tilkynningunni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila