Þegar áhrifa kaldastríðsins hætti að gæta, kom upp þörf til þess að sameina hagsmunaöfl og mylja undir valdhafana og því var búin til loftslagsváin sem fyrst og fremst gengur út á að skattleggja almenning og knýja hann til hlýðni. Þetta kom fram í máli Páls Vilhjálmssonar framhaldsskólakennara, blaðamanns og bloggara í þætti Péturs Gunnlaugssonar.
Páll segir ef einhver alvara væri á bak við það sem haldið er fram af hálfu loftslagssinna þá hefði verið eðlilegt að þeir hefðu velt því fyrir sér að koma á COP28 ráðstefnuna á árabátum en ekki einkaþotum.
Engin hlýnun eða hamfarir yfirvofandi
Páll bendir á að koltvísýringur sé ekki nema 0,04% af andrúmslofti jarðar mælt í 400 ppm og því erfitt að sjá að hann ætii að hafa jafn mikil áhrif og menn vilja vera láta og að auki er 97% þess koltvísýrings náttúrulegur og aðeins 3% af mannavöldum. Hann segir að það að halda því fram að það séu þessi 3% en ekki þessi 97% sem stjórni veðrinu sé einfaldlega firra.
Þá segir Páll að rétt fyrir litlu ísöld hafi verið hlýskeið og þá hafi Íslendingar búið á Grænlandi og stundað þar kúabúskap. Svo hafi litla ísöld tekið við um 1300 og í kringum 1450 þá hafi byggð laggst af í Grænlandi vegna kólnunar. Þannig hafi þetta alltaf verið, það koma hlýskeið og svo kuldaskeið. Til séu gögn í fornveðurrannsóknum um að á 50 ára tímabili hafi hiti hækkað um 3 – 4 gráður en nú sé verið að tala um tímabil þar sem hitastig kunni að hækka um eina gráðu.
Það sé því engin hlýnun í gangi og hvað þá hamfarir yfirvofandi segir Páll og hvað koltvísýringinn varðar þá megi nefna að ef magn hans í andrúmsloftinu myndi tvöfaldast þá myndi hitinn hækka í mesta lagi um 0,75 gráður og engin áhrif hafa.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan