Enn rís land við Svartsengi

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hægt hefur aðeins á landrisinu frá því á föstudag, en hraðinn á landrisinu er engu að síður meiri en mældist fyrir 10. nóvember þegar að kvikugangurinn sem liggur undir Grindavík myndaðist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu.

Í tilkynningunni segir að á meðan að kvika haldi áfram að safnast fyrir við Svartsengi séu líkur á öðru kvikuhlaupi og einnig eldgosi.

Ef til kvikuhlaups kemur er talið líklegast að kvikan hlaupi aftur inn í kvikuganginn sem myndaðist 10. nóvember. Líklegasti upptakastaður eldgoss er norður af Grindavík í átt að Hagafelli og svæðinu við Sundhjúksgíga.

Skjálftavirkni hefur haldist nokkuð svipuð síðustu daga. Skjálftavirknin er áfram væg og er mest á svæðinu við Hagafell.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila