Erlendir iðnaðarmenn rétthærri en íslenskir

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði frá dómi máli Félags pípulagningameistara gegn pólskum pípulagningameistara og íslenska ríkinu og lagði á félagið að greiða alls 1.120.000 krónur í málskostnað.

Engir lögvarðir hagsmunir

Dómurinn byggist á því að félagið hafi ekki haft lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Þá var einnig talið að stefnt hefði verið röngum aðila þar sem íslenska ríkinu var stefnt í stað sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Málinu var því vísað frá og félaginu gert að greiða 620.000 krónur til pípulagningameistarans og 500.000 krónur til ríkisins.

Aðgerðir sagðar hafa valdið tjóni

Í málatilbúnaðinum er því haldið fram að aðgerðir félagsins hafi haft veruleg áhrif á starfsemi pípulagningameistarans hér á landi og leitt til þess að hann missti af fjölda verkefna. Þá er rakið að félagið hafi ítrekað gripið til aðgerða gagnvart honum, meðal annars með kærum til stjórnvalda og lögreglu og með því að höfða dómsmál vegna starfsréttinda hans.

Menntun staðfest samkvæmt íslenskum kröfum

Forsaga málsins nær aftur til ársins 2019 þegar viðkomandi fékk leyfisbréf í pípulögnum hér á landi. Hann lauk meistaraprófi í Póllandi árið 2023 og sótti í kjölfarið um viðurkenningu á menntun sinni. Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu veitti honum meistarabréf 10. júní 2024 að undangenginni umsögn ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofunnar sem staðfesti að menntun hans uppfyllti íslensk skilyrði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila