
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við erlendum karlmanni sem gekk á milli fólks í Árbænum í dag og sagðist safna styrkjum fyrir góðgerðarmál. Í að minnsta kosti tveimur tilvikum urðu eldri borgarar fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni eftir samskipti við manninn.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu bað maðurinn um styrk að upphæð 2.000 krónur en þegar greiðsla hafði farið fram kom í ljós að 2.000 evrur höfðu verið teknar af greiðslukortum viðkomandi.
Bað um kort og PIN-númer
Í báðum tilvikum gaf maðurinn sig á tal við eldri borgara og óskaði eftir fjárstuðningi við ótilgreind góðgerðarsamtök. Hann vildi ekki taka við reiðufé heldur óskaði eftir greiðslukorti og PIN-númeri. Til greiðslunnar notaði hann farsíma sinn sem posa.
Eftir á kom í ljós að upphæðin sem skuldfærð var af kortunum var margfalt hærri en fólkið taldi sig vera að greiða.
Lögreglan varar við
Lögreglan hvetur almenning til að sýna fyllstu varúð gagnvart ókunnugum sem óska eftir greiðslum með þessum hætti og að afhenda aldrei ókunnugum greiðslukort eða PIN-númer. Jafnframt er fólk hvatt til að hafa samband við lögreglu ef það hefur orðið vart við manninn eða hefur upplýsingar sem gætu hjálpað við rannsókn málsins.
Hafa ekki greinargóða lýsingu á manninum
Að svo stöddu liggur aðeins takmörkuð lýsing fyrir á manninum. Samkvæmt lögreglu var hann svartklæddur, í hvítum strigaskóm og talaði ensku. Málið er til rannsóknar.
