
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðu íslensku verkalýðshreyfingarinnar gagnvart hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sólveig Anna segir að aðild myndi veikja stöðu launafólks og íslenska vinnumarkaðskerfið gæti ekki varðveist óbreytt innan sambandsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Íslenska kerfið er einstakt
Aðspurð hvort verkalýðshreyfingin yrði sterkari eða veikari við inngöngu í ESB segir Sólveig að aðild væri ekki í þágu íslensks launafólks. Um 90% launafólks hér á landi séu í stéttarfélögum og það hlutfall hafi haldist stöðugt. Slík þátttaka væri einstök á heimsvísu á meðan stéttarfélagsaðild hefði víða dregist saman innan ESB.
Pétur spurði hvort sömu þróun mætti sjá í Svíþjóð þar sem stéttarfélög hafa lengi verið öflug. Sólveig svaraði því til að aðild þar væri enn tiltölulega mikil en hefði engu að síður farið minnkandi.
Hún vísaði einnig til skýrslu sem unnin var fyrir stjórnvöld og gefin út skömmu fyrir sumar. Þar væri sérstakur kafli um íslenska vinnumarkaðinn og fram kæmi að þróunin hér væri einstök og frábrugðin því sem gerst hefði í sambærilegum ESB-ríkjum.
Sólveig Anna og Vilhjálmur Birgisson sammála um að Ísland ætti ekki erindi í ESB
Sólveig tók fram að hún talaði fyrir eigin hönd. Hvorki stjórn Eflingar né Alþýðusamband Íslands hefðu mótað formlega afstöðu til ESB-aðildar.
Hún og Vilhjálmur Birgisson væru meðal fárra formanna innan verkalýðshreyfingarinnar sem hefðu lýst skýrri skoðun. Rök þeirra væru ekki að öllu leyti þau sömu en þau væru sammála um að Ísland ætti ekki heima í ESB.
Skiptar skoðanir innan ASÍ
Þegar Sólveig var spurð hvort ASÍ ætti að taka afstöðu fyrir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst sagði hún að skoðanir innan aðildarfélaganna séu mjög skiptar. ASÍ hefði stutt aðild Íslands þegar fyrri umsóknin var lögð fram eftir fjármálahrunið en langt væri um liðið og nú væri engin opinber afstaða í gildi.
Sólveig á ekki von á að sambandið móti afstöðu fyrir atkvæðagreiðsluna. Ef niðurstaðan yrði sú að halda aðildarviðræðum áfram gæti hins vegar hafist umræða innan verkalýðshreyfingarinnar um þátttöku í viðræðunum og hvernig hagsmunum vinnandi fólks yrði komið þar á framfæri.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
