
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Pál Halldór Halldórsson, rallýökumann og jeppaáhugamann í síðdegisútvarpinu um óvissu sem hann segir ríkja um framtíð íslenskra jeppabreytinga gagnvart reglum ESB. Páll segir mögulegt bann ekki aðeins bitna á jeppaáhugamönnum heldur einnig ferðaþjónustu, björgunarsveitum, vísindamönnum og fyrirtækjum sem þurfa að komast um hálendið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Bíða eftir skriflegu svari
Páll sagði Ferðaklúbbinn 4×4 hafa unnið að endurskoðun reglna um breytingar og notkun jeppa ásamt breytingarfyrirtækjum, ferðaþjónustunni, hagsmunasamtökum og skoðunarstofum. Markmiðið væri að færa reglurnar til nútímans og eyða gráum svæðum án þess að slaka á kröfum um öryggi og fagleg vinnubrögð. Skýrsla um málið hefði verið send til Samgöngustofu fyrir um tveimur árum en væri enn í vinnslu. Fulltrúar Ferðaklúbbsins hefðu ítrekað óskað eftir svörum og fundað með stofnuninni.
Pétur spurði sérstaklega hvað yrði um íslensku reglurnar ef Ísland gengi í ESB. Páll sagði sér hafa verið tjáð munnlega að Ísland hefði þegar innleitt mikið af evrópska regluverkinu en hann taldi það ekki nægja. Nauðsynlegt væri að fá skriflegt og bindandi svar frá ráðuneytinu um hvort séríslenskar jeppabreytingar fengju áfram að standa.
Óttast að starfsemin verði bönnuð
Páll sagðist óttast að íslenskar jeppabreytingar gætu hreinlega verið bannaðar ef samræmdum evrópskum reglum yrði beitt hér að fullu. Breyttir íslenskir bílar væru skoðaðir samkvæmt innlendum reglum en sú skoðun tryggði ekki sjálfkrafa að heimilt væri að nota þá í öðrum Evrópulöndum.
Hann sagði erfitt að vita hvernig reglurnar þróuðust eftir inngöngu í ESB. Ísland væri lítið ríki og sérþarfir landsins kynnu að njóta takmarkaðs skilnings meðal þeirra sem þekktu ekki íslenskar aðstæður.
Afleiðingarnar gætu orðið umfangsmiklar. Breytingarfyrirtæki veittu fjölda fólks atvinnu og ferðaþjónustufyrirtæki gerðu út stóran flota sérútbúinna bíla. Páll nefndi eitt fyrirtæki sem væri með um 50 breytta bíla og fjölda starfsmanna.
Kom 120 bílum til hjálpar
Páll sagði breyttu bílana einnig nauðsynlega fyrir björgunarsveitir, Veðurstofuna, orkufyrirtæki, verktaka og rannsóknarfólk. Þeir væru notaðir til að flytja vísindamenn, blaðamenn og björgunarfólk að eldgosum og öðrum stöðum sem venjulegir bílar kæmust ekki að.
Hann rifjaði upp útkall á Hellisheiði þar sem fyrstu upplýsingar hefðu verið um 5–7 fasta bíla. Þegar hann kom á vettvang reyndust þeir vera um 120. Páll fór á eigin breytta jeppa og dró fyrstu 20 bílana úr sköflum áður en aðgerðin hélt áfram.
Dæmið sýni hversu mikilvægt væri að horfa ekki aðeins á stærð breyttu bílanna heldur hlutverkið sem þeir gegndu. Þegar óveður, eldgos eða slys bæri að höndum væru þetta tækin sem gætu komist á vettvang og flutt fólk aftur í öryggi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
