ESB-deilan verður komin aftur miklu fyrr en margir halda

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Stefán Pálsson, sagnfræðing og varaborgarfulltrúa Vinstrisins, í síðdegisútvarpinu í dag,um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Stefán spáði því að deilur um Evrópusambandið og mögulega aðild Íslands blossi upp á ný, miklu fyrr en margir gera ráð fyrir, þrátt fyrir niðurstöðu kosninganna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Þjóðaratkvæðagreiðslur leysa sjaldan deilurnar

Stefán sagðist efins um að þjóðaratkvæðagreiðslur væru sérstaklega vel til þess fallnar að útkljá umdeild pólitísk mál til langframa. Hann vísaði meðal annars til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um sjálfstæði Skotlands þar sem talað hefði verið um að niðurstaðan myndi útkljá málið til margra ára. Skömmu síðar hefðu þeir sem urðu undir hins vegar viljað taka málið upp að nýju vegna breyttra forsendna.

Sama hefði gerst eftir Brexit. Báðar fylkingar hefðu lagt áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslan myndi útkljá málið en deilurnar um samband Bretlands við ESB héldu áfram.

Þróunin gæti orðið eins hér á landi

Stefán taldi líklegt að svipuð þróun yrði á Íslandi. Þeir sem urðu undir gætu innan skamms vísað til breyttra forsendna og krafist þess að ESB-málið yrði tekið upp á ný.

Arnþrúður benti á að þjóðin hefði nú talað og velti fyrir sér hvaða áhrif niðurstaðan hefði til lengri tíma. Stefán taldi hins vegar varasamt að líta svo á að málið væri þar með leyst til frambúðar.

Hann sagði niðurstöðuna þó vonandi skapa andrými til að beina athyglinni að öðrum málum sem hefðu setið á hakanum, meðal annars kjarasamningum, bensínverði, vöxtum og verðbólgu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila