ESB krafðist þess að Ísland gæfi eftir fyrirvara Alþingis

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um ástæður þess að mikilvægir kaflar í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið voru ekki opnaðir. Jón sagði ESB hafa krafist þess að Ísland félli frá fyrirvörum Alþingis um sjávarútvegs-og landbúnaðarmál, matvælaöryggi og dýravernd. Jón hefði ekki viljað svíkja þingið með því að láta undan þrýstingnum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

ESB hafnaði fyrirvörunum

Jón fór með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar þegar sótt var um aðild árið 2009.

Jón sagði Alþingi hafa sett skýra fyrirvara vegna sjávarútvegs, landbúnaðar, matvælaöryggis og dýraheilbrigðis. Þegar aðildarumsóknin var send ESB 16. júlí 2009 hefðu þessir fyrirvarar hins vegar ekki fylgt henni. Það hefði verið í andstöðu við vilja Alþingis en umsóknin hefði hvorki verið þýdd á íslensku né birt í Stjórnartíðindum.

Jón sagði Evrópusambandið ekki hafa viljað opna kaflana um sjávarútveg og landbúnað á grundvelli fyrirvaranna. Ísland þyrfti fyrst að breyta skilyrðunum og fallast á að reglur sambandsins giltu um málaflokkana.

Vildi ekki svíkja Alþingi

Arnþrúður spurði hvort Jón hvort hann sjálfur hefði verið helsti andstæðingur ESB-aðildar innan ríkisstjórnarinnar. Hann svaraði því til að hann hefði verið andvígur inngöngu en jafnframt borið skylda til að fylgja samþykkt Alþingis.

Aðspurður hvort þrýst hefði verið á hann að breyta rauðu strikunum sagði Jón svo hafa verið. Þrýstingur hefði bæði komið frá Evrópusambandinu og samstarfsmönnum hans innan ríkisstjórnarinnar.

Jón sagði að með því að láta undan hefði hann gefið eftir fyrirvara Alþingis og þar með svikið þingið. Hann hefði ekki verið tilbúinn til þess þótt honum væri kennt um að standa í vegi fyrir viðræðunum.

Í greinargerð með þingsályktuninni hefði verið kveðið á um, ef gefa þyrfti meira eftir en Alþingi heimilaði bæri að senda málið aftur til þingsins. Jón sagðist hafa fylgt þeim fyrirmælum.

Kaflarnir voru ekki opnaðir

Jón sagði reynt hafa á fyrirvarana við vinnu kaflans um dýraheilbrigði og matvælaöryggi. Ágreiningurinn hefði meðal annars snúist um innflutning lifandi dýra og varnir sjúkdómalauss íslensks landbúnaðar.

Fulltrúar Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, yfirdýralæknir og Bændasamtökin hefðu farið yfir fyrirliggjandi niðurstöðu. Meirihluti utanríkismálanefndar hefði ekki samþykkt hana þar sem gengið hefði verið lengra en heimild Alþingis náði til. Samningsafstaðan hefði því verið afturkölluð í desember 2012.

Sama staða hefði komið upp í sjávarútvegsmálum. Jón sagði bréf hafa borist frá stækkunarstjóra ESB þar sem óskað var eftir að Ísland staðfesti að það féllist á forræði Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum. Annars yrði kaflinn ekki opnaður.

Utanríkisráðherra tilkynnt að viðræðum við ESB væri hætt af hálfu Íslands

Aðspurður hver bæri ábyrgð á stöðvuninni sagði Jón hvern fagráðherra bera ábyrgð á sínum málaflokkum. Hann bæri ábyrgð á því að hafa fylgt samþykkt Alþingis en aðeins þingið sjálft gæti ákveðið að falla frá fyrirvörunum. Í byrjun árs 2013 hefði Össur Skarphéðinsson þáverandi utanríkisráðherra tilkynnt að viðræðum við ESB væri lokið

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila