
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing í síðdegisútvarpinu í dag, um ETS-kerfið, kolefnisgjöld og áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf. Kristinn sagði gjöldin koma sérstaklega þungt niður á Íslandi vegna legu landsins, flutningskostnaðar og mikillar orkunotkunar í samgöngum og innflutningi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Gjöldin lenda á neytendum
Kristinn sagði að ETS-gjöldin bættust inn í kostnað fyrirtækja og skiluðu sér að lokum til almennings. Hann benti á að Ísland væri eyja og þyrfti því að flytja vörur og fólk um langan veg með skipum og flugi. Þar með yrðu áhrif kolefnisgjalda meiri hér en í löndum sem hefðu greiðari aðgang að lestum og landflutningum. Gjöldin leiði til hækkunar á fraktkostnaði, vöruverði og ferðalögum. Hann sagði að þegar útgjöld framleiðslu- og flutningsfyrirtækja hækkuðu lenti það á neytendum, ýmist beint í verði eða óbeint í gegnum verðbólgu og vísitölu.
Ísland með sérstöðu
Arnþrúður spurði hvort íslensk stjórnvöld hefðu ekki ástæðu til að leita undanþágu eða mildari meðferðar, þar sem Ísland framleiðir raforku sína að mestu með endurnýjanlegum orkugjöfum. Kristinn tók undir að rök væru fyrir því að Ísland ætti að geta losnað undan slíkum gjöldum, óháð nákvæmum lagalegum forsendum.
Benti Kristinn á að staða Íslands væri ólík stöðu margra ESB-ríkja. Hér væri ekki hægt að færa stóran hluta flutninga yfir á lestarkerfi og kolefnisgjöld vegna flugs og skipaflutninga hefðu því bein áhrif á heimili og fyrirtæki.
Óljóst hvert fjármunirnir renna
Kristinn gagnrýndi einnig að erfitt væri að rekja hvert fjármunirnir færu. Hann vísaði til viðtals Arnþrúðar Karlsdóttur við Sigurjón Þórðarson formann Fjárlaganefndar þar sem fram kom að aðeins hluti tekna af gjöldunum væri rekjanlegur til skilgreindra loftslagsverkefna.
Arnþrúður sagði mikilvægt að skýringar lægju fyrir, enda væru landsmenn að greiða kostnaðinn. Kristinn sagði málið snúast ekki aðeins um loftslagsstefnu heldur einnig skattheimtu, gegnsæi og áhrif á lífskjör almennings.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
