
Evrópuhreyfingin og Ungir Evrópusinnar opna kosningamiðstöð sína í dag að Garðastræti 6 í Reykjavík í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Veitingar og skemmtun í boði
Opnunarhátíðin hefst klukkan 17:00 og er búist við fjölmennri samkomu stuðningsfólks. Þar verða léttar veitingar í boði, Sigrún Skaftadóttir sér um tónlist og Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, flytur stutt ávarp.
Opið alla daga
Samkvæmt tilkynningunni verður kosningamiðstöðin opin alla daga fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fer 29. ágúst.
Smelltu hér til þess að sjá nánari staðsetningu á korti
