Eyjólfur: Bókun 35 gengur þvert á stjórnarskrá Íslands

Bókun 35 gæti haft alvarlegar afleiðingar gagnvart fullveldi Íslands og grafið undan því verði hún samþykkt. Bókun 35 gegnur þvert á stjórnarská Íslands. Stjórnarskrárbreytingar eru nauðsynlegar ef bókun 35 verður samþykkt á Alþingi. Þetta segir Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í Síðdegisútvarpinu en hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

EES samningurinn hefði ekki verið samþykktur ef hann hefði gert ráð fyrir bókun 35

Eyjólfur bendir á að EES-samningurinn hefði ekki verið samþykktur á sínum tíma ef hann hefði innihaldið bókun 35. Hann segir að það hafi verið lykilatriði fyrir þá sem stóðu að baki samningnum að tryggja að Ísland gæti haldið ákveðnum sjálfstæðum rétti þegar komi að innlendum lögum jafnvel þó alþjóðlegar reglur hefðu ákveðna forgangstöðu. Hann telur að bókuninni gæti opnað dyrnar fyrir því að lög með uppruna í Evrópusambandinu myndu í auknum mæli taka forgang fram yfir íslensk lög.

Bókun 35 getur grafið undan réttaröryggi landsins

Eyjólfur leggur áherslu á að í þrjá áratugi hafi samningurinn virkað vel og engin þörf hafi verið fyrir breytingar. Kerfið hafi staðið undir sér og gert Íslandi kleift að fylgja alþjóðlegum samningum án þess að skerða innlent löggjafarvald. Eyjólfur dregur einnig fram fordæmi frá öðrum Evrópulöndum þar sem lög sem byggja á Evrópusambandsreglum hafa ekki verið rétt innleidd og það hefur leitt til skaðabótakrafna á hendur viðkomandi ríkjum. Hann telur að slíkar aðstæður gætu myndast á Íslandi ef bókunin yrði samþykkt. Það myndi grafa undan réttaröryggi landsins.

Hver á að hafa síðasta orðið þegar á að ákveða íslensk lög og sjálfstæði

Eyjólfur varar sérstaklega við því að bókun 35 muni grafa undan fullveldi Íslands, þar sem almenn lög yrðu sett fram yfir innlenda stjórnarskrá. Hann ítrekar að málið sé ekki aðeins tæknilegs eðlis heldur grundvallarspurning um hver eigi að hafa síðasta orðið þegar kemur að því að taka ákvarðanir sem snerta íslensk lög og sjálfstæði þjóðarinnar.

Stjórnarskárbreytingar nauðsynlegar ef samþykkja á bókun 35

Eyjólfur áréttar að bókun 35 gangi þvert á stjórnarskrá Íslands, þar sem ekki sé hægt að setja almenn lög sem ganga framar öðrum tegundum laga án þess að það sé bundið í stjórnarskránni sjálfri. Þetta myndi krefjast stjórnarskrárbreytinga, sem eru bæði tímafrekar og krefjast mikillar samstöðu á Alþingi. Hann telur að núverandi tillaga sé einfaldlega tilraun til að auka áhrif alþjóðlegra reglna á kostnað innlendrar löggjafar og standi á veikum grunni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila