
Langflest heimili sem fá greiddar húsnæðisbætur eiga litlar eða engar eignir og hafa því ekki notið verulega góðs af hækkun eignamarka undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á greiðslum húsnæðisbóta í apríl 2026. Samkvæmt greiningunni eru aðeins um 1,1 prósent þeirra heimila sem fengu húsnæðisbætur með eignir yfir núverandi neðri skerðingarmörkum og verða því fyrir skerðingu bóta vegna eigna.
Eignamörk hafa meira en tvöfaldast frá 2017
Skerðingarmörk húsnæðisbóta vegna eigna hafa hækkað verulega frá árinu 2017. Þá voru neðri mörkin 6,5 milljónir króna og efri mörkin 10,4 milljónir króna. Í dag eru neðri mörkin komin í 13,9 milljónir króna og efri mörkin í 22,2 milljónir króna.
Greining HMS sýnir þó að langflest heimili sem þiggja húsnæðisbætur eru langt undir þessum mörkum. Um 32 prósent heimila eiga engar eignir en alls eru um 67 prósent með eignir undir núverandi neðri skerðingarmörkum. Ekkert þeirra heimila sem fékk húsnæðisbætur í apríl var með eignir yfir efri mörkunum 22,2 milljónum króna, en við þau mörk falla bæturnar alveg niður.
Hækkunin hafði áhrif á lítinn hóp
Samkvæmt HMS hefðu um 91,4 prósent þeirra heimila sem fengu húsnæðisbætur í apríl ekki orðið fyrir skerðingu vegna eigna þótt eignamörkin hefðu staðið óbreytt frá árinu 2017. Um 8,6 prósent heimila hefðu hins vegar fengið skertar bætur eða misst rétt á þeim ef eignamörkin hefðu ekki verið hækkuð undanfarin ár.
Gögnin benda til þess að helsti ávinningurinn af hækkun eignamarka hafi komið fram hjá heimilum með eignir á bilinu 6,5 til 13,9 milljónir króna. Sá hópur nam um 5,5 prósentum þeirra heimila sem fengu húsnæðisbætur í apríl. Þá hefðu um 3,1 prósent heimila ekki átt rétt á húsnæðisbótum samkvæmt þeim reglum sem giltu árið 2017, þegar efri skerðingarmörkin voru 10,4 milljónir króna.
Tæpur milljarður greiddur í húsnæðisstuðning
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun greiddi alls um 992 milljónir króna í húsnæðisstuðning vegna leigu í apríl síðastliðnum.
Stærsti hluti greiðslnanna var vegna almennra húsnæðisbóta. Alls fengu um 17.986 heimili greiddar tæpar 959 milljónir króna í almennar húsnæðisbætur. HMS áætlar að leigumarkaðurinn hér á landi telji um 50 þúsund heimili og því nái greiðslurnar til um þriðjungs hans.
Sérstakur stuðningur í Kópavogi og Skagafirði
Auk almennra húsnæðisbóta greiddi HMS sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Kópavog og Skagafjörð sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í apríl voru tæpar 33 milljónir króna greiddar til 1.064 heimila í Kópavogi og 83 heimila í Skagafirði.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaga og er ætlað að styðja einstaklinga og fjölskyldur sem eiga erfitt með að standa undir húsnæðiskostnaði vegna félagslegra eða fjárhagslegra aðstæðna.
