Fagna fyrirhuguðum breytingum á Helsingforssamningnum

Norræna félagið á Íslandi hefur sent frá sér ályktun þar sem félagið fagnar því að Norðurlandaráð vinni nú að tillögum um breytingar á Helsingforssamningnum, stjórnarskrá norræns samstarfs.

Félagið telur samninginn barn síns tíma og að löngu sé orðið tímabært að endurskoða hann. Norrænt samstarf þurfi að vera í stöðugri endurnýjun og aðlaga sig að þeim breytingum sem verða innan Norðurlanda og utan, annars hnigni því smám saman og það veikist.


Þá segir félagi’það blasa við að eigi sameiginleg framtíðarsýn ríkisstjórna Norðurlandanna um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði veraldar árið 2030, að verða að veruleika, verði að gera róttækar breytingar á Helsingforssamningnum hið fyrsta og samhliða tryggja umtalvert aukin fjárframlög til sameiginlegra norrænna verkefna.

Að mati Norræna félagsins er mikilvægt að í nýrri stjórnarskrá norræns samstarfs verði eftirfarandi tryggt:

Full aðild Grænlands, Færeyja og Álandseyja þegar þau svo kjósa.

Að samstarfið taki til allra málasviða hins opinbera á hverjum tíma, einnig utanríkismála, samgöngumála, öryggis- og varnarmála og annarra málaflokka sem ekki falla þar undir í dag.

Sameiginlegur norrænn ríkisborgararéttur.

Örugg fjármögnun sameiginlegra verkefna, t.d. sem fast hlutfall landsframleiðslu.

Þá þakkar Norræna félagið á Íslandi í ályktuninni, íslenskum stjórnvöldum og íslenskum þingmönnum í Norðurlandaráði fyrir einarða afstöðu þeirra til mikilvægis norræns samstarfs og hvetur þau til dáða í baráttu þeirra fyrir endurskoðun Helsingforssamingsins og auknu fjármagni til norræns samstarfs.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila