Fagnar 40 ára söngferli með stórtónleikum í Salnum 4.október

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Elínu Ósk Óskarsdóttur, óperusöngkonu, kórstjóra og söngkennara í síðdegisútvarpinu um 40 ára söngafmæli hennar sem verður fagnað með stórum tónleikum í Salnum í Kópavogi 4. október. Elín Ósk verður ein með sólóhlutverkið en með henni koma fram þrír píanistar og Óperukór Reykjavíkur auk þess sem tvöfaldan kór þarf í lokaatriðið. Elín ætlar jafnframt að skipta um búning margoft og gerir ráð fyrir að vera með um 8 kjóla. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Þrír píanistar og tvöfaldur kór

Arnþrúður spurði Elínu í upphafi viðtalsins hvernig hún ætlaði að fagna 40 ára söngafmælinu.

Elín sagði mikið standa til. Henni til fulltingis í söngnum verða píanistarnir Antonía Hevesi, Peter Máté og Jónas Þórir. Elín verður ein með sólóhlutverkið á tónleikunum en Óperukór Reykjavíkur kemur einnig fram undir stjórn Arons Axels Cortes. Annar kór verður fenginn til viðbótar vegna lokaatriðis tónleikanna þar sem Elín þarf tvöfaldan kór.

Bergþór Pálsson leiðir áheyrendur í gegnum dagskrána

Elín sagði jafnframt mikilvægt að áheyrendur vissu hvað þeir væru að hlusta á og hvers þeir mættu vænta á sviðinu. Bergþór Pálsson, söngvari verður því sögumaður og kynnir á tónleikunum. Elín lýsti honum sem kærum vini sínum.

Tónleikarnir verða sunnudaginn 4. október klukkan 18:00 í Salnum í Kópavogi og er miðasala hafin á TIX.is

Um 8 kjólar í farteskinu

Tónlistin verður ekki eina atriðið sem Elín þarf að huga að á sviðinu. Hún sagði mikið tilstand verða í kringum búningana og að hún yrði önnum kafin við að skipta um kjóla. Hún gerði ráð fyrir að vera með um 8 kjóla í farteskinu og hefði sjálf saumað 3 þeirra.

Einn þeirra verður notaður þegar hún syngur aríuna „In questa reggia“ úr Turandot þar sem hún fer með hlutverk kínverskrar prinsessu. Elín sagði slíkar prinsessur hafa verið hugsaðar í stórum kjólum og með mikil höfuðskraut þegar verkið var samið. Hún hefur sjálf búið til bæði búninginn og höfuðskrautið fyrir atriðið.

Óperan verður í fyrirrúmi

Arnþrúður spurði hvers konar tónlist Elín ætlaði að flytja og hvort íslensk eða norræn tónlist yrði á dagskránni.

Elín sagði dagskrána verða fjölbreytta. Hún myndi snerta á íslenskri, norrænni og trúarlegri tónlist með Óperukórnum en meginhluti tónleikanna yrði helgaður óperunni. Hún mun því að mestu syngja óperuaríur og senur úr óperum ásamt Óperukór Reykjavíkur.

Smelltu hér til þess að kaupa miða á tónleikana.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila