Fara þarf í umfangsmiklar breytingar á samgöngukerfi Reykjavíkur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Brynjar Níelsson, nýkjörinn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í síðdegisútvarpinu um samgöngumál í Reykjavík og gagnrýni á stefnu borgaryfirvalda gagnvart einkabílnum. Andúð á einkabílnum yrði að stöðva strax. Þar kom fram að umferðarmál hefðu verið látin sitja á hakanum árum saman og borgarbúar upplifðu sífellt meiri tafir, þrengingar og óánægju með skipulag samgangna í borginni. Hugmyndir um Borgarlínu væru ekki raunhæf lausn. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill bæta flæði umferðar um höfuðborgarsvæðið eitt af forgangsverkefnum

Í viðtalinu sagði Brynjar að mikilvægt væri að ráðast í framkvæmdir sem gætu bætt flæði umferðar strax og dregið úr daglegum töfum. Hann nefndi sérstaklega framkvæmdir við Miklubraut, mislæg gatnamót við Sprengisand og breytingar á Höfðabakka sem dæmi um verkefni sem þyrfti að ráðast í sem fyrst. Að hans mati hefði of mikil áhersla verið lögð á að þrengja að einkabílnum í stað þess að bæta samspil allra ferðamáta. Hann sagði að borgarbúar vildu fyrst og fremst geta komist leiðar sinnar innan eðlilegs tíma, hvort sem þeir notuðu einkabíl eða almenningssamgöngur.

Brynjar benti á að stór atvinnusvæði hafi verið byggð upp á svæðum þar sem gatnakerfið réði illa við aukna umferð. Hann taldi að skort hefði á heildstæða sýn á samgöngur og uppbyggingu.

Andúð á einkabílnum hefur mótað stefnuna

Í umræðunni sagði Brynjar að borgaryfirvöld hefðu um árabil litið á einkabílinn sem vandamál fremur en nauðsynlegan samgöngumáta fyrir stóran hluta íbúa. Hann sagði að þrengingar gatna, fækkun bílastæða og breytingar á umferðarskipulagi hefðu aukið gremju meðal borgarbúa. Hann sagði jafnframt að frelsi fólks til að velja sér ferðamáta hefði verið skert með markvissum hætti og margir upplifðu að ákvarðanir væru teknar út frá hugmyndafræði fremur en raunverulegum þörfum íbúa.

Að mati Brynjars þyrfti borgin að leggja meiri áherslu á ljósastýringu gatna, betri umferðarskipulagningu og sérakreinar fyrir strætó þar sem það væri raunhæft. Með því mætti bæta flæði bæði almenningssamgangna og bílaumferðar samtímis.

Gagnrýnir vegtolla og núverandi borgarlínuhugmyndir – Vegtollar nýjir skattar á morgarbúa

Brynjar gagnrýndi einnig hugmyndir um vegtolla á höfuðborgarsvæðinu og sagði slíka gjaldtöku í reynd fela í sér nýja skattlagningu á íbúa ákveðinna hverfa. Hann sagði ekki hægt að bjóða fólki upp á auknar álögur til að komast til vinnu eða sinna daglegum erindum. Þá sagði hann að áfram mætti þróa almenningssamgöngur og sérakreinar fyrir strætó, en að borgarlínan í núverandi mynd væri ekki raunhæf lausn á þeim samgönguvanda sem borgarbúar stæðu frammi fyrir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila