Fasteignagjöldin of há og yfirbyggingin of umfangsmikil

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ara Edwald, oddvita Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í síðdegisútvarpinu um álögur og rekstur Reykjavíkurborgar. Þar kom fram að Ari telur svigrúm til lækkunar gjalda vera til staðar enda hafi tekjur borgarinnar aukist verulega á síðustu árum á sama tíma og rekstur sé orðinn þungur og yfirbygging umfangsmikil. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Tekjur hafa aukist en rekstrarvandi áfram til staðar

Ari sagði að rauntekjur Reykjavíkurborgar hefðu aukist um um 50% á síðustu 10 árum. Þrátt fyrir það væri reksturinn í erfiðri stöðu sem benti til þess að vandinn liggi frekar í útgjöldum en tekjum. Hann hafnaði því að borgin stæði frammi fyrir tekjuvanda og taldi að betri stjórn og hagræðing gætu skilað bæði bættri þjónustu og lægri gjöldum.

Hærri álögur en í nágrannasveitarfélögum

Í viðtalinu kom fram að fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði í Reykjavík séu um 1,6% samanborið við um 1,4 % í sumum nágrannasveitarfélögum. Að mati Ara hefur þetta áhrif á samkeppnisstöðu borgarinnar og geti hvatt fyrirtæki til að flytja starfsemi sína annað á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldi borgarfulltrúa og kostnaður

Ari gagnrýndi einnig fjölda borgarfulltrúa og kostnað sem fylgir stjórnmálakerfinu. Hann benti á að lágmarksfjöldi borgarfulltrúa í Reykjavík væri nú lögbundinn 23 auk þess sem varamenn fái veruleg laun. Hann vísaði til úttektar Viðskiptaráðs sem sýni að Reykjavík sé með fleiri borgarfulltrúa og hærri launakostnað en aðrar norrænar höfuðborgir, jafnvel miðað við höfðatölu.

Stjórnmálamenn taki til í eigin ranni

Í umræðunni lagði Ari áherslu á að stjórnmálamenn þurfi að setja fordæmi með því að taka fyrst á eigin kostnaði og yfirbyggingu. Hann sagði að hagræðing í rekstri borgarinnar ætti að byrja „efst í kerfinu“ áður en gripið væri til frekari álaga á íbúa og fyrirtæki.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila