Fegurð fjallanna flutt heim í stofu með Steinprýði

Þegar kemur að því að velja fallegan stein á hólf eða gólf er gott að leita til fagmanna í þeim efnum því úrvalið er mikið og gæðin geta verið misjöfn. Þetta vita starfsmenn Steinprýði og því kappkostar fyrirtækið að veita viðskiptavinum sínum eingöngu upp á gæðavöru þegar kemur að granít, marmara eða hverju öðru sem viðskiptavinurinn kýs. Pétur Daníelsson frá Steinprýði var gestur Jörundar Guðmundssonar í þættinum Fólk og fyrirtæki í gær þar sem hann fræddi hlustendur um hvernig varan er unnin og hvaða kosti þær hafa til að bera.

Daníel segir að hér á árum áður hafi verið ákveðin vandamál með hvítar steintegundir sem nýttar eru oft á gólf og veggi og þær áttu það til að draga í sig bletti en með vöruþróun fyrirtækja í slíkum rekstri er nú hægt að fá blettafríar steinplötur.

Steinn hefur marga kosti, til dæmis þegar hann er notaður í innréttingar og sem dæmi er hægt að leggja frá sér potta beint af eldavél og á steininn án þess að óttast að skemma borðplötuna. Hann segir að markaðurinn í dag sé þannig að fólk leiti mest eftir efnum úr steini á baðherbergi og í eldhús enda er auðvelt að þrífa steininn og svo er hann ótrúlega slitsterkur.

Steinninn er unnin í sérstökum námum erlendis og fluttur hingað til lands og er fulluninn hér á landi og því er óhætt að segja að þeir hjá Steinprýði flytji fegurð fjallanna heim í stofu, baðherbergi eða eldhús, allt eftir því hvað viðskiptavinurinn kýs. Smelltu hér til þes að kynna þér fyrirtækið nánar. Hér að neðan má sjá sýnishorn af því sem er í boði hjá þeim félögum í Steinprýði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila