Ferðaþjónustan varar við aukinni gjaldtöku og skorti á fyrirsjáanleika

Samtök ferðaþjónustunnar vara við því að aukin gjaldtaka og skortur á fyrirsjáanleika af hálfu stjórnvalda geti dregið úr samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar, hamlað fjárfestingum og haft neikvæð áhrif á samfélög um allt land. Samtökin skora á stjórnvöld að setjast að samningaborðinu með greininni og leita leiða til að auka tekjur samfélagsins af ferðaþjónustu án þess að veikja atvinnugreinina.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum ferðaþjónustunnar þar sem lögð er áhersla á að ferðaþjónusta sé ein stærsta atvinnugrein landsins og standi undir um þriðjungi útflutningstekna Íslands.

Samtökin benda jafnframt á að tugþúsundir starfa hafi orðið til í greininni og að áhrif hennar séu sérstaklega mikil á landsbyggðinni þar sem ferðaþjónustan hafi skapað ný atvinnutækifæri og stuðlað að uppbyggingu fjölbreyttrar þjónustu.

Aukin gjaldtaka sögð draga úr samkeppnishæfni

Samtökin segja árangur ferðaþjónustunnar undanfarin ár hafa verið eftirtektarverðan en vara við þróun sem geti dregið úr þeim ávinningi sem greinin skilar samfélaginu.

Aukin gjaldtaka og skortur á fyrirsjáanleika dragi úr mætti og seiglu ferðaþjónustunnar og veiki samkeppnishæfni hennar. Þá geti þróunin dregið úr fjárfestingum í gæðum og framtíðaruppbyggingu og haft neikvæð áhrif á nærsamfélög víða um land.

Segja aðrar leiðir geta skilað meiri tekjum

Samtök ferðaþjónustunnar telja mögulegt að afla ríki og sveitarfélögum sömu eða jafnvel meiri tekna með öðrum leiðum en aukinni gjaldtöku á greinina.

Þær leiðir séu þegar vel þekktar, raunhæfar og geti jafnframt stutt við markmið ferðamálastefnu og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.

Samtökin tilgreina þó ekki í yfirlýsingunni hvaða leiðir þau vilja að stjórnvöld fari eða hvernig þær eigi að skila hærri tekjum.

Þau kalla þess í stað eftir markvissu samstarfi við stjórnvöld um leiðir til að auka verðmætasköpun og tekjur samfélagsins af ferðaþjónustu.

Samtökin segja sameiginlega hagsmuni stjórnvalda og atvinnugreinarinnar felast í öflugri ferðaþjónustu sem styðji við uppbyggingu samfélaga um allt land og skili ríkissjóði ríkulegum tekjum. Þau kalla eftir samtali við stjórnvöld um hvernig skapa megi meiri verðmæti, auknar tekjur og stöðugleika til lengri tíma.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila