Fíkniefnaheimurinn og glæpastarfsemi á Íslandi mun harðari en áður

Fíkniefnaviðskipti á Íslandi hafa breyst mikið á síðustu árum og er þessi heimur sem flestum er hulinn orðinn mun harðari en áður. Þetta kom fram í máli Jóns Jacobsen varaformanns Samtaka aðstandenda fíknisjúkra sem nýlega missti 17 ára son sinn í bruna á Stuðlum var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í Síðdegisútvarpinu.

Jón lýsti því hvernig harsvíraðir hópar hafi tekið yfir markaðinn og hvernig glæpastarfsemi tengd fíkniefnum hafi aukist og sonur hans hafi farið illa út úr þeim heimi þrátt fyrir ungan aldur. Með þessu fylgir meira ofbeldi þar sem skuldir og fjárkúganir eru daglegt brauð og einstaklingar eru oft þvingaðir til að selja eða smygla efnum til að greiða skuldir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Burðardýr óttast hótanir og ofbeldi

Fíkniefni berast til landsins með ýmsum hætti og burðardýr eru oft notuð til að koma efnunum til Íslands. Margir sem taka þátt í þessu eru í viðkvæmri stöðu og gera sér ekki grein fyrir alvarleika málsins fyrr en þeir standa frammi fyrir hótunum eða líkamlegu ofbeldi. Jón segir að með aukinni fíkniefnadreifingu hafi ofbeldi á götum úti aukist. Þegar skuldin er ekki greidd sé oft gripið til harkalegra aðgerða og fjölskyldumeðlimum skuldara jafnvel hótað til að tryggja greiðslu.

Ungmennin glæpavædd

Ungmenni eru sérstaklega viðkvæmur hópur í þessum aðstæðum. Jón bendir á að glæpahópar noti samfélagsmiðla til að nálgast unglinga og fá þá til að dreifa fíkniefnum í skiptum fyrir peninga og vernd. Þeir sem reyna að hætta eiga oft á hættu refsingar eða frekari hótanir. Hann segir að hópamyndanir meðal unglinga hafi aukist og að smáglæpir séu að þróast í hættulegan undirheim þar sem vopn eins og hnífar eru algeng.

Skortur á úrræðum

Þrátt fyrir aukinn vanda eru meðferðarúrræði af skornum skammti. Jón segir að margir deyi á biðlista eftir nauðsynlegri aðstoð og að fjárfesting í meðferð sé ófullnægjandi. Á meðan ekkert er gert muni glæpahópar halda áfram að blómstra og nýta sér veikleika samfélagsins. Hann telur nauðsynlegt að grípa inn í áður en fleiri ungmenni dragast inn í þessa hættulegu hringrás og að breyta þurfi stefnu stjórnvalda gagnvart fíknivanda og forvörnum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila