Fimm handteknir á Akureyri eftir ábendingar um vopnaburð

Lögreglan á Akureyri handtók síðdegis í dag 5 einstaklinga eftir að henni bárust ábendingar um hugsanlegan vopnaburð í bænum.

Einstaklingarnir voru í 2 bifreiðum sem lögregla stöðvaði vegna málsins. Við leit í bílunum fundust að minnsta kosti 2 skotvopn.

Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu og ekki hafa verið veittar frekari upplýsingar um hvort fleiri vopn eða aðrir munir tengdir málinu hafi fundist.

Ekki liggur heldur fyrir hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir fólkinu. Lögreglan hefur að svo stöddu ekki tjáð sig frekar um rannsókn málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila