Fjárhagslegur grunnur uppbyggingar Blikastaðalands styrktur

Mosfellsbær og Blikastaðaland ehf. hafa undirritað nýtt samkomulag sem styrkir fjárhagslegan grundvöll uppbyggingar í Blikastaðalandi. Samkomulagið felur í sér aukið og fyrr greitt framlag til uppbyggingar helstu innviða og er viðauki við samning sem gerður var árið 2022.

Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir allt að 3.500–3.700 íbúðum á Blikastaðalandi í þremur áföngum. Í fyrsta áfanga er miðað við rúmlega 1.200 íbúðir og fjölgun íbúa um um það bil þrjú þúsund.

Greiðslur hækka og berast fyrr

Með nýja samkomulaginu hækka innviðagjöld sem Blikastaðaland ehf. greiðir Mosfellsbæ og greiðslur berast fyrr í ferlinu, í takt við uppbyggingu hverfisins. Á móti er fallið frá fyrirkomulagi um hlutdeild sveitarfélagsins í framtíðarsölu lóða og greiðslur verða alfarið í formi fjárframlaga.

Heildargreiðslur til Mosfellsbæjar vegna uppbyggingarinnar hækka þannig úr því að nema um 12 milljörðum króna í greiðslum og lóðum í allt að 16 milljarða króna sem berast fyrr á uppbyggingartímanum.

Innviðir tryggðir á svæðinu

Samkomulagið gerir ráð fyrir byggingu tveggja grunnskóla, fjögurra leikskóla, íþróttahúss og að minnsta kosti fjögurra búsetukjarna fyrir fatlað fólk á Blikastaðalandi. Framlag sem tengist íþróttamannvirkjum er tvöfaldað og landið sem leikskólinn Höfðaberg stendur á rennur til Mosfellsbæjar þannig að starfsemi hans geti haldið áfram óbreytt.

Jafnframt er framkvæmd samningsins einfölduð þar sem greiðslur fara fram með fjármunum í stað afhendingar lóða síðar á uppbyggingartímanum.

Bæjarbúum gefinn kostur á að koma með athugasemdir

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti samkomulagið samhljóða á fundi miðvikudaginn 7. janúar. Deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalands verður lagt fram í skipulagsnefnd í janúar og í kjölfarið hefst opið samráðsferli þar sem íbúum gefst kostur á að senda inn athugasemdir.

Samkomulagið er talið leggja traustan grundvöll að áframhaldandi uppbyggingu á Blikastaðalandi sem er eitt stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila