Fjármálastöðugleikanefnd heldur gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5%.

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Verðbólga hefur minnkað og aðlögun hefur átt sér stað í heildareftirspurn. Raunvextir hafa hækkað og dregið hefur úr lánsfjáreftirspurn heimila og fyrirtækja. Þetta segir í yfirlýsingu fjármaálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands.

Þar segir einnig að skuldahlutföll hafi almennt lækkað og séu nú lægri en þau hafa verið um árabil. Eiginfjárstaða heimila hefur batnað samhliða hækkun húsnæðisverðs og lækkun skulda að raunvirði. Á sama tíma hefur greiðslubyrði lánþega þyngst en vanskil eru þó enn lítil. Hækkun raunvaxta hefur þrengt að rekstrarumhverfi fyrirtækja og útlit er fyrir að áhrifa þeirra gæti áfram á næstu misserum. Á móti vegur að eiginfjárstaða fyrirtækja í flestum atvinnugreinum er sterk sem veitir viðnámsþrótt.

Horfur eru á að fólksfjölgun og afleiðingar eldsumbrotanna á Reykjanesi ýti undir umsvif á íbúðamarkaði þrátt fyrir núverandi vaxtastig og takmarkanir lánþegaskilyrða. Verð á húsnæði er enn hátt í langtímasamhengi og mikilvægt er að lántakendur stilli áhættutöku við íbúðakaup í hóf.

Þyngri greiðslubyrði lána samhliða hægari efnahagsumsvifum eykur líkur á greiðsluerfiðleikum með neikvæðum áhrifum á fjármálastöðugleika. Til að viðhalda viðnámsþrótti bankanna hefur fjármálastöðugleikanefnd ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5%.

Í yfirlýsingunni segir einnig að Fjármálastöðugleikanefnd ítreki stuðning sinn við framgang frumvarps um aukið rekstraröryggi í greiðslumiðlun sem er til meðferðar á Alþingi. Mikilvægt sé að huga heildstætt að viðnámsþrótti greiðslumiðlunar, með óháðri innlendri greiðslumiðlun, því að auka samkeppni, styrkja net- og rekstraröryggi og treysta rekstrarsamfellu.

Nefndin mun áfram beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila