Fjármálastöðugleikanefnd varar við aukinni áhættu í byggingageiranum

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands segir fjármálakerfið hér á landi traust og vel í stakk búið til að mæta áföllum, en varar jafnframt við aukinni áhættu í byggingastarfsemi, þrálátri verðbólgu og vaxandi netógnum. Þetta kemur fram í nýrri yfirlýsingu nefndarinnar sem birt var í dag.

Samkvæmt nefndinni er fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun gott. Þá séu skuldahlutföll heimila og fyrirtækja almennt lág og vanskil enn takmörkuð.

Álagspróf Seðlabanka Íslands bendi einnig til þess að stóru bankarnir 3 geti staðið af sér veruleg efnahagsáföll án þess að skerða verulega lánsfjárframboð til viðskiptavina.

Hægir á húsnæðismarkaði

Í yfirlýsingunni kemur fram að húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu hafi fjölgað og sölutími lengst, sérstaklega fyrir nýjar íbúðir. Á sama tíma hafi skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi aukist undanfarin misseri og merki séu um vaxandi vanskil í greininni þótt þau séu enn tiltölulega lítil.

Fjármálastöðugleikanefnd segir lánveitendur þurfa að sýna aukna varúð gagnvart áhættu í byggingageiranum.

Varað við netógnum og rekstraráhættu

Nefndin segir áhættu í rekstri fjármálainnviða hafa aukist með hraðri tæknivæðingu, þróun gervigreindar og auknum óróa í alþjóðamálum. Lögð er áhersla á að Seðlabankinn, stjórnvöld og fjármálafyrirtæki vinni saman að því að styrkja viðbúnað og tryggja samfellu í nauðsynlegri fjármálaþjónustu ef alvarleg rekstraratvik verða.

Þá kemur fram að ný lausn fyrir kortagreiðslur í netleysi verði innleidd um mitt þetta ár. Nefndin telur mikilvægt að fjölga greiðsluleiðum og styrkja innviði fyrir nýjar greiðslulausnir til að auka seiglu fjármálakerfisins.

Sveiflujöfnunarauki áfram 2,5%

Fjármálastöðugleikanefnd ákvað jafnframt að halda sveiflujöfnunaraukanum óbreyttum í 2,5%.

Nefndin segir áfram verða gripið til þeirra stýritækja sem nauðsynleg eru til að tryggja fjármálastöðugleika, þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll og áfram miðlað lánsfé og greiðslum með eðlilegum hætti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila