Fjölgun hvala kallar á áframhaldandi veiðar

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands í síðdegisútvarpinu um stærð hvalastofna við Ísland og forsendur hvalveiða. Vilhjálmur sagði langreyðarstofninn vera sterkan og áframhaldandi hvalveiðar væru nauðsynlegar til að viðhalda jafnvægi í vistkerfi hafsins. Hann hafnaði jafnframt því að veiðarnar ógnuðu stofninum eða brytu gegn vísindalegri ráðgjöf. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Langreyðastofninn mjög sterkur

Vilhjálmur sagði engar vísbendingar vera um að langreyður við Ísland væri í útrýmingarhættu. Þvert á móti taldi hann stofninn hafa eflst verulega og nefndi að áætlað væri að 40–50 þúsund langreyðar væru á Íslandsmiðum. Á sama tíma væru árlegar veiðar aðeins lítill hluti stofnsins.

Benti hann á að sjómenn hafi orðið varir við mikla fjölgun hvala á undanförnum árum og það styddi niðurstöður um sterkan stofn. Að hans mati yrði einnig að horfa til þess að hvalir neyttu mikils magns af loðnu, síld og öðrum nytjastofnum og því skipti máli að halda eðlilegu jafnvægi í lífríki hafsins.

Veiðarnar byggjast á lögum og vísindalegri ráðgjöf

Vilhjálmur sagði íslenskar hvalveiðar fara fram samkvæmt lögum og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hann taldi mikilvægt að nýting auðlindarinnar byggðist á rannsóknum og sjálfbærni fremur en tilfinningalegri umræðu. Hann gagnrýndi jafnframt þá afstöðu að hvalir ættu að njóta meiri verndar en aðrar tegundir í vistkerfinu. Að hans mati þyrfti að horfa á samspil allra nytjastofna og tryggja að nýting þeirra væri í samræmi við vísindalegar forsendur.

Vill áfram bæta dýravelferð við veiðarnar

Vilhjálmur sagði hvalveiðimenn leggi ríka áherslu á að aflífa dýrin með eins skjótum hætti og unnt væri. Hann vísaði til þess að veiðarnar sættu ströngu eftirliti og samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir lægju dræpust um 80% hvala í fyrsta skoti. Hann sagði markmiðið ávallt vera að bæta veiðiaðferðir enn frekar og lágmarka þjáningar dýranna. Hins vegar yrði ekki hjá því komist af frávik yrðu á þessu í hvalveiðum rétt eins og í veiðum á öðrum villtum dýrum.

Jafnframt gagnrýndi hann að umræða um hvalveiðar snerist gjarnan um einstök frávik en síður um heildarmyndina eða þær vísindalegu forsendur sem veiðarnar byggðust á.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila