
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Fjölni Sæmundsson, rannsóknarlögreglumann og formann Landssambands lögreglumanna í síðdegisútvarpinu í dag, um mansal, vændi og aukið ofbeldi. Fjölnir sagði að þessi mál tengdust oft fíkniefnum og skipulagðri glæpastarfsemi. Hann sagði jafnframt að lögregla hefði orðið meðvitaðri um umfang mansals hér á landi, á sama tíma og alvarlegum líkamsárásum virtist fjölga. Í nýlegri skýrslu frá Ríkislögreglustjóra kæmi fram að umtalsverð aukning hefði orðið á kynferðisbrotum gegn ungmennum undir 18 ára aldri, aðallega stúlkum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ungmenni berskjölduð í neysluumhverfi
Aðspurður um nýlegt mál þar sem leitað var að ungri stúlku sem var eftirlýst af lögreglunni, sagði Fjölnir að hann gæti ekki tjáð sig um einstök mál en staðfesti að málið væri í höndum lögreglu. Hann benti á að ungmenni í fíkniefnaneyslu enduðu oft í félagsskap eldri brotamanna. Þar gæti myndast ósjálfstæði þar sem fíkniefni væru látin af hendi gegn kynferðislegum greiða eða annarri þjónustu.
Hann lagði áherslu á að fullorðnir bæru ávallt ábyrgð þegar börn ættu í hlut og að aldur eða neysla brotaþola breytti því ekki.
Fíkniefni nýtt til að stjórna fólki
Arnþrúður spurði hvort fíkniefni væru notuð til að hafa stjórn á brotaþolum. Fjölnir svaraði því til að það væri þekkt að einstaklingar sem hefðu yfir fíkniefnum að ráða nýttu þá stöðu til að fá fólk til að framkvæma hluti sem það myndi ella ekki gera, þar á meðal að veita kynferðislega greiða.
Hann sagði að í slíkum málum gætu komið til álita brot á borð við mansal eða nauðgun og tengsl skipulagðrar glæpastarfsemi og fíkniefna væru þar oft augljós.
Eitt högg getur valdið dauða
Í viðtalinu sagði Fjölnir að lögregla sæi sífellt fleiri alvarlegar líkamsárásir. Að hans mati gæti aukin neysla fíkniefna, einkum kókaíns, átt þátt í því að fólk yrði hömlulausara og ofbeldisfyllra. Hann hvatti jafnframt ungt fólk til að gera sér grein fyrir því að eitt högg gæti valdið varanlegum meiðslum eða jafnvel dauða.
Gagnrýnir leynd yfir vændiskaupendum
Þá var rætt um aukið vændi hér á landi og fjölda erlendra kvenna sem kæmu hingað til dvalar í stuttan tíma en væru í vændissölu á vegnum dólga sem stjórnuðu vændinu. Oft kæmi upp mansalsmál í tengslum við slíka atburðarrás. Gagnrýndi Fjölnir einnig hvernig sum vændismál væru rekin fyrir dómstólum. Hann sagði óeðlilegt ef farið væri með þau af meiri leynd en önnur sakamál og taldi mikilvægt að samfélagið horfðist í augu við umfang vændis og mansals hér á landi. Ótrúlegasta fólk keypti vændisþjónustu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
