Fjórir í gæsluvarðhald vegna fíkniefnasmygls

loggubillnyrFjórir karlar sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi á um 4 kg af amfetamíni, auk töluverðs magns af sterum. Einn til viðbótar var jafnframt handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, en sá er nú laus úr haldi lögreglu. Rannsóknin hefur staðið yfir undanfarnar vikur, en lagt var hald á efnin í sendingu til landsins. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að rannsókn málsins miðar vel, en í þágu hennar voru framkvæmdar nokkrar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu að undangengnum dómsúrskurði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila