
Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á innflutningi 5 kg af amfetamíni frá Þýskalandi. Mennirnir eru einnig grunaðir um að hafa tekið á móti fleiri fíkniefnasendingum undanfarnar vikur. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði mennina í gæsluvarðhald í gær að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhaldið gildir til 28. október og er byggt á almannahagsmunum. Þrír mannanna voru handteknir í fyrri hluta september og sá fjórði viku síðar. Þeir voru allir handteknir í Reykjavík.
Amfetamínið kom í hraðsendingu
Rannsókn lögreglu snýst um 5 kg af amfetamíni sem flutt voru til landsins í hraðsendingu frá Þýskalandi.
Lögregla grunar jafnframt að mennirnir hafi tekið á móti fleiri fíkniefnasendingum undanfarnar vikur og er sá þáttur málsins einnig til rannsóknar.
Við húsleitir fundust fleiri fíkniefni sem lögregla telur tengjast eldri sendingum.
Þar á meðal fannst 1 kg af ketamíni.
Voru fyrst í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna
Fjórmenningarnir höfðu áður verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Nýi úrskurðurinn um áframhaldandi gæsluvarðhald er hins vegar byggður á almannahagsmunum.
Lögreglan stefnir að því að ljúka rannsókn málsins fljótlega. Að rannsókn lokinni verður málið sent embætti héraðssaksóknara.
