
Fjórir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikla rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa. Þrír mannanna voru handteknir í sameiginlegum aðgerðum lögreglu og Tollgæslunnar um miðjan mánuðinn en sá fjórði var handtekinn í síðustu viku. Mennirnir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri.
Varðhald framlengt
Tveimur mannanna hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 5. maí. Um er að ræða mann sem handtekinn var í síðustu viku og einn þeirra sem áður höfðu verið handteknir í aðgerðunum um miðjan mánuðinn. Hinir tveir sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí.
Málið er enn til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
