Fjörukráin komin í úrvalsdeildina með 60 ný herbergi

Rúnar Þór ræddi við Jóhannes Viðar Bjarnason, eiganda Fjörukrárinnar, í þættinum Slappaðu af um mikla uppbyggingu við Fjörukrána og Hótel Víking í Hafnarfirði. Nýr hluti hótelsins hefur nú verið tekinn í notkun með um 60 herbergjum og Jóhannes segir starfsemina með þessu komna í „úrvalsdeildina“. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Eldri 60 herbergin tekin í gegn

Jóhannes sagði opnun nýja hlutans hafa gengið vel og gestir verið ánægðir með húsakynnin. Stækkunin gefi fyrirtækinu bæði meira pláss og meiri möguleika.

Uppbyggingunni er þó ekki lokið. Í vetur verður eldri hluti hótelsins endurbyggður og endurnýjaður þannig að hann falli að nýja hlutanum. Þar eru um 60 herbergi sem verða tekin í gegn.

Markmiðið er að allur hótelhlutinn verði í sama stíl og verði að fjögurra stjörnu hóteli.

Jóhannes hóf rekstur Fjörukrárinnar árið 1990 og opnaði þar 10. maí það ár. Starfsemin hófst í litlu gömlu húsi en hefur síðan stækkað jafnt og þétt.

Nýi hlutinn eins konar víkingakastali

Nýbyggingin fylgir víkingaþema Fjörukrárinnar og Hótels Víking. Jóhannes lýsti nýja hlutanum sem eins konar víkingakastala með miklu af listmunum, styttum og útskornu skrauti.

Allt að 12 asískir listamenn hafa unnið að skreytingunum og verið við störf þar í um eitt ár. Jóhannes sagði afraksturinn hafa gert hótelið óvenjulegt og skapað þá ásýnd sem hann vildi fyrir Víkingaþorpið.

Fleiri verkefni gætu fylgt

Jóhannes sagði uppbygginguna í gegnum tíðina hafa þróast þannig að eitt verkefnið tæki við af öðru. Hann útilokar því ekki frekari framkvæmdir þegar núverandi endurbótum lýkur.

Fjörukráin er í hjarta Hafnarfjarðar og líkti Jóhannes henni við innsiglingarljós inn í höfnina. Fyrir framan krána stendur Þór í fullri stærð og tekur á móti þeim sem sigla inn Hafnarfjarðarhöfn.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila