
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra í Síðdegisútvarpinu um 10 ára afmæli Flokks fólksins. Inga fór yfir upphaf flokksins, þróun hans frá stofnun árið 2016 og þann árangur sem hún telur að hafi náðst í baráttunni gegn fátækt og fyrir bættum kjörum tekjulágra hópa. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Upphaf flokksins og baráttan gegn fátækt
Inga rifjaði upp að markmið flokksins frá fyrsta degi hefði verið að berjast gegn fátækt og bæta stöðu fólks sem stæði höllum fæti í samfélaginu. Hún sagði að tíminn hefði liðið hratt og að starf í stjórnmálum hefði tekið mikinn toll á einkalífi hennar og fjölskyldu. Hún nefndi jafnframt hún hefði þurft að fórna miklum tíma með fjölskyldu sinni á meðan flokkurinn var byggður upp. Hún sagði að fyrstu árin hefðu einkennst af baráttu úr stjórnarandstöðu þar sem flokkurinn hefði þrýst á um breytingar á kjörum eldri borgara, öryrkja og barnafjölskyldna. Að hennar mati hefði þátttaka flokksins í ríkisstjórn gert það mögulegt að hrinda mörgum af helstu stefnumálunum í framkvæmd.
Árangur í ríkisstjórn kjósendum að þakka
Inga sagði að Flokkur fólksins hefði náð fram verulegum breytingum á almannatryggingakerfinu og að tugþúsundir einstaklinga hefðu fengið hækkanir á greiðslum sínum á síðustu árum. Hún nefndi sérstaklega tengingu almannatrygginga við launavísitölu og sagði að flokkurinn hefði þurft að mæta mikilli andstöðu við þær breytingar. Hún sagði jafnframt að stuðningur kjósenda hefði verið lykillinn að því að flokkurinn hefði náð inn í ríkisstjórn á skömmum tíma. Flokkurinn hefði farið úr því að vera tveggja manna framboð yfir í að vera með tíu þingmenn og ráðherraembætti.
Framtíðarsýn flokksins
Inga sagði að þrátt fyrir árangur væru áfram stór verkefni fram undan. Hún nefndi húsnæðismál, stöðu barna í fátækt og vaxandi félagslegan ójöfnuð sem stærstu áskoranirnar. Hún sagði að flokkurinn hygðist halda áfram að leggja áherslu á velferðarmál, húsnæði og stuðning við viðkvæma hópa. Hún sagði jafnframt að Flokkur fólksins hygðist áfram leggja áherslu á að styrkja stöðu barna og fjölskyldna og bæta aðgengi fólks að félagslegri þjónustu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
