Flokkur fólksins og Píratar leggja fram vantraust á ríkisstjórnina og krefjast þingrofs

Flokkur fólksins og Píratar hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lýst er yfir vantrausti á ríkisstjórnina í heild sinni.

Jafnframt er farið fram á að þingi verði rofið fyrir 26. júlí og efnt til almennra kosninga þann 7. september næstkomandi.

Flokkur fólksins hafði í síðustu viku boðað að vantrauststillagan yrði borin fram líklega í þessari viku og er hún komin fram nú og sem fyrr segir flytja Píratar tillöguna ásamt Flokki fólksins.

Flutningsmenn tillögunar eru: Inga Sæland, Björn Leví Gunnarsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Eyjólfur Ármannsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Gísli Rafn Ólafsson, Katrín Sif Árnadóttir, Halldóra Mogensen, Tómas A. Tómasson, Indriði Ingi Stefánsson.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila