
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Alexöndru Mist Halldórsdóttur, tamningakonu og skipuleggjanda mótmæla á Austurvelli, í síðdegisútvarpinu, um framhaldið eftir mótmælin gegn ríkisstjórninni. Alexandra sagði mikinn áhuga vera á áframhaldandi mótmælum og að hún hefði fengið fjölmörg skilaboð frá fólki sem vildi vita hvenær næst yrði boðað til þeirra. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
250 til 300 mættu á Austurvöll
Um 5.500 manns höfðu brugðist við Facebook-viðburðinum en Alexandra sagði 250 til 300 hafa mætt á Austurvöll.
Arnþrúður spurði hvort fólk væri ekki nógu duglegt að skila sér á mótmæli. Alexandra benti á að dagsetningunni hefði verið breytt. Upphaflega hefðu mótmælin átt að fara fram 10. október en ákveðið hefði verið að færa þau fram þar sem of langt væri í þá dagsetningu.
Sumir hefðu þegar sett fyrri dagsetninguna í dagatalið sitt og ekki fengið upplýsingar um breytinguna. Það hefði að hennar mati eflaust haft áhrif á mætinguna.
Eftir mótmælin hefði hún hins vegar fengið fjölmörg skilaboð frá fólki sem hefði ekki komist en vildi mæta næst.
Fyrstu mótmælin voru algjör frumraun
Alexandra sagði mótmælin hafa verið fyrstu mótmælin sem hún hefði sjálf staðið fyrir og því hefði verið um algjöra frumraun að ræða.
Hún hafði sett viðburðinn á Facebook og sent upplýsingar til fjölmiðla en sagðist ekki hafa fengið viðbrögð frá þeim. Þeir hefðu þó mætt á staðinn og tekið myndir í leyni, eins og hún orðaði það.
Næst þyrfti að auglýsa betur og undirbúa mótmælin með meiri fyrirvara. Hún væri sjálf að læra inn á skipulagið og hefði nú fengið gott fólk með sér til að gera næstu mótmæli betur.
Fólk vill jafnvel mótmæla strax næsta laugardag
Arnþrúður spurði hvort viðbrögðin hefðu verið það sterk að ástæða væri til að halda áfram og hvort fleiri vildu láta sjá sig.
Alexandra svaraði því afdráttarlaust játandi og sagði að skilaboðum hafi rignt yfir hana. Hún sagði fólk jafnvel vilja mótmæli strax næsta laugardag en meiri undirbúning þyrfti og slíkt tæki tíma.
Hún ætlaði að ræða við fólkið sem væri að hjálpa henni við skipulagið í vikunni og þá ætti að skýrast betur hvenær næstu mótmæli færu fram.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
