Forsætisráðherra og utanríkisráðherra ætla að heimsækja Kænugarð

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, heimsækja Kænugarð í Úkraínu á morgun, þriðjudaginn 14. mars.

Í tilkynningu segir að markmið heimsóknar ráðherranna sé að sýna úkraínsku þjóðinni og stjórnvöldum samstöðu og ræða áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu.

Þá er tilefni heimsóknarinnar einnig formennska Íslands í Evrópuráðinu og leiðtogafundur ráðsins sem fer fram í Reykjavík í maí, en Úkraína mun hafa þýðingarmikið hlutverk á leiðtogafundinum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila