Forsætisráðherra og utanríkisráðherra funduðu með yfirhershöfðingja NATO

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingja Atlantshafsbandalagsins (SACEUR) sem jafnframt er yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, en Grynkewich er í heimsókn á Íslandi í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking. Einnig átti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fund með Grynkewich.

Ræddu aukinn varnarviðbúnað og þróun mála á norðurslóðum

Meðal umræðuefna á fundum Kristrúnar Frostadóttir forsætisráðherra og  Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Grynkewich voru horfur í öryggismálum og aukinn varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins. Einnig var rætt um þróun mála á norðurslóðum og vaxandi tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna.

„Við áttum gott samtal um stöðuna í kjölfar leiðtogafundarins í Ankara og aukinn varnarviðbúnað bandalagsins nú þegar öll ríki eru að efla eigin getu til að mæta breyttu öryggisástandi. Við fórum einnig yfir náið og gott varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna“  sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

„Við erum að takast á við nýtt landslag í öryggismálum og Ísland hefur verið að vinna að því að styrkja eigin varnir og áfallaþol með markvissum hætti. Það var mikilvægt að eiga gott samtal  við Grynkewich um þau mál og hvernig við eflum þátttöku innan Atlantshafsbandalagsins og styrkjum samstarfið við Bandaríkin enn frekar ekki síst núna þegar Evrópuríkin og Kanada eru að auka framlag sitt,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Hersföfðinginn heimsækir öryggissvæðið í Keflavík

Grynkewich mun heimsækja öryggissvæðið í Keflavík og ennfremur kynna sér nýsköpun og starfsemi íslenskra fyrirtækja sem bjóða vörur með tvíþætt notagildi. Hann mun einnig taka þátt í dagskrá á morgun, þriðjudag, í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking sem er tvíhliða varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands. Meginmarkmið æfingarinnar er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins (NATO).

Áætlað er að um 150-200 íslenskir þátttakendur komi að æfingunni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og Atlantshafsbandalaginu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila