Forsætisráðuneytið gefur út handbók um siðareglur ráðherra

Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra. Handbókin var samin af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytisins og í samvinnu við ráðuneytið. Þetta segir í itlkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Í tilkynningunni segir að í handbókinni séu settar fram skýringar á siðareglum ráðherra ásamt raunhæfum dæmum um túlkun þeirra. Bæði er leitast við að gera grein fyrir siðferðilegri þýðingu einstakra greina og útlista hvaða kröfur þær fela í sér. Markmið með handbókinni er að veita ráðherrum leiðbeiningar um efni siðareglnanna til að styðja við siðferðilega umhugsun. 

Ríkisstjórnin samþykkti þann 5. desember 2023 siðareglur ráðherra. Þær voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda þann 8. desember sama ár. Siðareglur ráðherra veita leiðsögn um það hvers konar framganga hæfir svo veigamiklu embætti en jafnframt gefa þær almenningi færi á að bera hegðun ráðherra saman við skráðar og útgefnar reglur. Þeim er ætlað að stuðla að trausti almennings á stjórnsýslunni.

Handbók um siðareglur ráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila