
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands í síðdegisútvarpinu í dag um nýjustu verðbólgutölur og áhrif þeirra á kjarasamninga. Vilhjálmur sagði nýja verðbólgumælingu gera nær öruggt að forsendur langtímakjarasamninganna frá árinu 2024 myndu ekki standast og endurskoðun samninganna væri því fram undan. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Verðbólgan yfir þeim mörkum sem samið var um
Vilhjálmur sagði verðbólgu hafa mælst 5,2% eftir 0,94% hækkun milli mánaða. Samkvæmt forsendum kjarasamninganna mætti verðbólga ekki fara yfir 4,7% í ágúst, en aðeins 2 mælingar væru eftir fram að þeim tíma. Hann sagði þróun síðustu mánaða benda eindregið til þess að það markmið næðist ekki. Hann rifjaði upp að þegar samningarnir voru undirritaðir í apríl 2024 hefði verkalýðshreyfingin samþykkt hóflegar krónutöluhækkanir í þeirri trú að allir aðilar myndu vinna sameiginlega að því að ná niður verðbólgu og vöxtum. Sú þróun hefði ekki orðið að veruleika.
Vonir um lægri vexti hafa brugðist
Benti Vilhjálmur á að markmiðið hafi verið að verðbólga yrði komin niður fyrir 3,5% og stýrivextir í um 5,5%. Þess í stað væri verðbólgan enn yfir 5% og stýrivextir 7,5% sem sýndi að efnahagsstefnan hefði ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að. Hann sagði verðbólguvæntingar skipta miklu máli í þróun verðlags og taldi skort á trú á að takast mætti á við verðbólguna stuðla að áframhaldandi hækkunum á verði vöru og þjónustu.
Segir fleiri þurfa að taka ábyrgð
Vilhjálmur sagði verkalýðshreyfinguna hafa staðið við sinn hluta samkomulagsins en fleiri aðilar hefðu ekki lagt sitt af mörkum. Hann benti á að sum fyrirtæki hefðu hækkað verð langt umfram það sem efni stóðu til á meðan önnur hefðu sýnt að hægt væri að halda verðhækkunum í lágmarki. Að hans sögn stendur verkafólk nú frammi fyrir þeirri stöðu að þær forsendur sem langtímasamningarnir byggðust á séu að falla brott. Hann sagði því ljóst að endurskoðun samninganna yrði eitt stærsta verkefni aðila vinnumarkaðarins á næstu vikum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
