Forsendur taldar fyrir búsetu og skólahaldi í Grindavík

Forsendur eru nú taldar vera fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík sem ríkisstjórnin fjallaði um á fundi sínum í dag.

Niðurstaðan markar breytingu frá mati ríkisstjórnarinnar í apríl þegar talið var að ekki væru forsendur til að hefja skólahald að nýju eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum.

Áhættan geti verið sambærileg við önnur byggðarlög

Síðan í apríl hefur verið unnið að endurskoðun áhættumats fyrir þéttbýlið í Grindavík. Meðal þess sem hefur verið skoðað er öryggi fólks við daglega dvöl og hugsanlega rýmingu, möguleikar á samfelldu skólahaldi, velferð barna og öryggi húsnæðis.

Niðurstöðurnar benda til þess að hægt sé að halda áhættu fyrir fólk sem dvelur eða starfar í Grindavík innan sambærilegra marka og í öðrum byggðarlögum þar sem fólk býr við langvarandi náttúruvá. Það er þó háð því að öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar ráðstafanir virkar.

Stjórnvöld leggja jafnframt áherslu á að aðstæður í Grindavík séu áfram sérstakar. Náttúruógnin sé viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið þar til goslokum hefur verið lýst yfir.

Grindvíkingar geti keypt húsnæði aftur

Ríkisstjórnin telur að forsendur þess mats sem hún lagði fram 10. apríl hafi nú breyst. Það þýðir þó ekki að óvissu vegna náttúruvár sé lokið.

Áfram þurfi nána vöktun og tryggja að viðvörunarkerfi og rýmingaráætlanir séu ávallt virk. Við ákvarðanir um búsetu og skólahald þurfi sérstaklega að horfa til hagsmuna og velferðar barna.

Niðurstöðurnar eiga jafnframt að skapa grundvöll fyrir næstu skref í endurreisn Grindavíkur. Þar á meðal verði hægt að hefja markvisst og í áföngum undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum, kjósi þeir það.

Heildstæðu áhættumati fyrir Grindavík er enn ekki lokið. Vinnunni verður haldið áfram og matið endurskoðað eftir því sem aðstæður, þekking og reynsla þróast.Forsendur eru nú taldar vera fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík sem ríkisstjórnin fjallaði um í dag.

Niðurstaðan markar breytingu frá mati ríkisstjórnarinnar í apríl þegar talið var að ekki væru forsendur til að hefja skólahald að nýju eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum.

Áhættan geti verið sambærileg við önnur byggðarlög

Síðan í apríl hefur verið unnið að endurskoðun áhættumats fyrir þéttbýlið í Grindavík. Meðal þess sem hefur verið skoðað er öryggi fólks við daglega dvöl og hugsanlega rýmingu, möguleikar á samfelldu skólahaldi, velferð barna og öryggi húsnæðis.

Niðurstöðurnar benda til þess að hægt sé að halda áhættu fyrir fólk sem dvelur eða starfar í Grindavík innan sambærilegra marka og í öðrum byggðarlögum þar sem fólk býr við langvarandi náttúruvá. Það er þó háð því að öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar ráðstafanir virkar.

Stjórnvöld leggja jafnframt áherslu á að aðstæður í Grindavík séu áfram sérstakar. Náttúruógnin sé viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið þar til goslokum hefur verið lýst yfir.

Grindvíkingar geti keypt húsnæði aftur

Ríkisstjórnin telur að forsendur þess mats sem hún lagði fram 10. apríl hafi nú breyst. Það þýðir þó ekki að óvissu vegna náttúruvár sé lokið.

Áfram þurfi nána vöktun og tryggja að viðvörunarkerfi og rýmingaráætlanir séu ávallt virk. Við ákvarðanir um búsetu og skólahald þurfi sérstaklega að horfa til hagsmuna og velferðar barna.

Niðurstöðurnar eiga jafnframt að skapa grundvöll fyrir næstu skref í endurreisn Grindavíkur. Þar á meðal verði hægt að hefja markvisst og í áföngum undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum, kjósi þeir það.

Heildstæðu áhættumati fyrir Grindavík er enn ekki lokið. Vinnunni verður haldið áfram og matið endurskoðað eftir því sem aðstæður, þekking og reynsla þróast.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila