
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, er á ferð um Suðurland í dag ásamt maka sínum, Birni Skúlasyni.
Heimsækir skóla og hjúkrunarheimili
Tilefni ferðarinnar er meðal annars 30 ára afmæli Leikskólans á Laugalandi. Þá munu forsetahjónin einnig heimsækja Laugalandsskóla, Hjúkrunarheimilið Lund og Hellana á Hellu.
Viðstödd viðburð í Hellisheiðarvirkjun
Síðdegis verða forsetahjónin viðstödd viðburð í Hellisheiðarvirkjun þar sem minnst verður 80 ára borsögu Jarðborana og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða.
