
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, fara í þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands dagana 19.–21. ágúst. Heimsóknin er í boði Alar Karis, forseta Eistlands, og eiginkonu hans, Sirje Karis, og er ætlað að styrkja tengsl Íslands og Eistlands meðal annars á sviði tækni og menntamála.
Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, verður í fylgdarliði forseta ásamt opinberri sendinefnd. Samhliða heimsókninni fer viðskiptasendinefnd undir forystu Íslandsstofu til Eistlands og tekur þátt í dagskrá með eistneskum fyrirtækjum.
Gervigreind og viðskipti í Tallinn
Eistnesku forsetahjónin taka formlega á móti forsetahjónunum á ráðhússtorginu í Tallinn að morgni 19. ágúst. Þar verður lagður blómsveigur að minnismerki um sjálfstæðisbaráttu Eistlands áður en forsetarnir funda í forsetahöllinni ásamt sendinefndum landanna.
Síðar um daginn taka forsetarnir þátt í samtali um gervigreind til góðs á viðburði viðskiptasendinefnda landanna. Halla mun einnig funda með Lauri Hussar, forseta eistneska þingsins, og heimsækja þinghúsið í Tallinn.
Fyrsta deginum lýkur með hátíðarkvöldverði í boði eistnesku forsetahjónanna í Arvo Pärt menningarmiðstöðinni í Laulasmaa.
Tekur þátt í 35 ára sjálfstæðishátíð
Ríkisheimsóknin fer fram á sama tíma og Eistlendingar minnast þess að 35 ár eru liðin frá endurreisn sjálfstæðis landsins. Halla tekur þátt í hátíðarhöldunum 20. ágúst, meðal annars fánahyllingu í Kuberneri-garðinum og heimsókn í sjónvarpsturninn í Tallinn sem varð tákn baráttu Eistlendinga gegn sovéskum hersveitum.
Hún sækir einnig hátíðarfund eistneska þingsins ásamt eftirlifandi stjórnmálamönnum sem samþykktu sjálfstæðisyfirlýsinguna árið 1991. Halla flytur þar ávarp ásamt forseta Eistlands og þingforsetum Eystrasaltslandanna.
Heimsækja skóla sem notar gervigreind
Síðasta dag heimsóknarinnar, 21. ágúst, heimsækja forsetahjónin og fylgdarlið menntaskóla þar sem nýstárlegar kennsluaðferðir tengdar gervigreind eru nýttar.
Ríkisheimsókninni lýkur síðan með hátíðlegri athöfn á Íslandstorginu í Tallinn.
