Fulltrúar Orkunnar okkar funduðu með forseta Íslands

Frá heimsókn hópsins til forseta Íslands.

Fulltrúar frá hópnum Orkan okkar funduðu í morgun með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands. Í tilkynningu frá Orkunni okkar segir að á fundinum hafi forsetanum erið afhent áskorun þar sem skorað er á forsetann að staðfesta ekki upptöku þriðja orkupakkans inn í EES-samninginn nema sameiginlega EES-nefndin hafi veitt Íslandi undanþágu frá innleiðingu eða að þjóðin hafi í þjóðaratkvæðagreiðslu fallist á að undirgangast skuldbindingar orkupakkans.

Forsetinn tók við bréfi samtakanna með áskorunninni og umsögnum frá liðnu vori um málið ásamt ásamt nýlegri gögnum um málið. Um er að ræða skýrslu samtakanna um  áhrif inngöngu Íslands í orkusamband ESB og minnisblöð Anars Þórs Jónssonar, héraðsdómara, og Tómasara Jónssonar, hrl. 


Í bréfinu til forsetans eru helstu þættir málsins raktir í stuttu málið og minnt á hugsanlegar afleiðingar verði innleiðing orkupakkans samþykkt.

Úr því sem komið er, sjá samtökin Orkan okkar því ekki önnur úrræði í stöðunni en að skora á forseta Íslands að bíða með að staðfesta þriðja orkupakkann inn í EES-samninginn þar til Ísland hefur fengið undanþágu frá innleiðingu hans eða þjóðin hefur í þjóðaratkvæðagreiðslu fallist á þær skuldbindingar sem í orkupakkanum felast.“ segir í lok bréfsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila