Frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur til skólastjórnunar og alþjóðlegs veitingareksturs

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sólveigu Hákonardóttur og Hjördísi Stefánsdóttur, fyrrverandi kennara og skólastjóra Húsmæðraskólans á Laugum í síðdegisútvarpinu um hvernig nám við Húsmæðraskólann í Reykjavík varð upphaf að löngum og fjölbreyttum starfsferli þeirra beggja. Fram kom að skólinn lagði grunn að störfum þeirra á sviði kennslu, matreiðslu og veitingareksturs, bæði hér á landi og erlendis. Sólveig var brautryjandi kvenna með námi við Hótel og veitingaskóla Íslands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Húsmæðraskólinn varð upphafið að frekara námi

Eftir útskrift úr Húsmæðraskólanum hélt Hjördís áfram námi í Hússtjórnarkennaraskóla Íslands þar sem hún lauk þriggja og hálfs árs kennaranámi. Námið veitti réttindi bæði til kennslu í framhaldsskólum og grunnskólum og opnaði henni leið inn á svið menntamála.

Hún starfaði fyrst við matreiðslu á hóteli við Laugarvatn en var síðar ráðin til kennslu við Húsmæðraskólann á Laugum í Reykjadal. Þar tók hún síðar við stöðu skólastjóra og gegndi því starfi um árabil. Hún rifjaði upp að kennarar hennar hefðu haft mikil áhrif á starfsferil hennar og nefndi sérstaklega Jónínu Bjarnadóttur matreiðslukennara sem naut mikillar virðingar fyrir fagmennsku sína og kunnáttu.

Sólveig brautryðjandi meðal kvenna í matreiðslu

Sólveig stefndi frá unga aldri að starfi við matreiðslu. Eftir útskift frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur sótti hún nám við Hótel- og veitingaskóla Íslands en á þeim tíma var erfitt að komast að í náminu og fá samningstíma sem krafist var til útskriftar.

Þrátt fyrir ýmsar hindranir lauk hún náminu og varð ein af fyrstu konunum sem útskrifuðust sem kokkar frá skólanum. Á þeim tíma voru karlar nær allsráðandi í faginu og hún sagði að ekki allir hefðu talið að konur ættu framtíð fyrir sér í þeirri grein. Hún lét slíkar efasemdir þó ekki stöðva sig.

Starfsvettvangur víða um heim

Starfsferill Sólveigar varð fjölbreyttur og leiddi hana langt út fyrir landsteinana. Hún starfaði meðal annars í Svíþjóð og Noregi og síðar við hótelrekstur á Bahamaeyjum. Einnig tók hún þátt í verkefnum tengdum ferðaþjónustu og veitingarekstri á fleiri stöðum erlendis.

Hún sagði að vilji til að grípa þau tækifæri sem buðust hefði mótað líf sitt og starfsferil. Dvölin erlendis hafi veitt henni reynslu, þekkingu og minningar sem fylgt hafi henni alla tíð.

Menntun og frumkvæði opnuðu dyr

Þótt leiðir þeirra Hjördísar og Sólveigar hafi legið í ólíkar áttir töldu þær báðar að námið í Húsmæðraskóla Reykjavík hefði reynst traustur grunnur. Það hafi kennt þeim vinnubrögð, sjálfstæði og fagmennsku sem nýttust síðar á ólíkum vettvangi.

Þær hvöttu ungt fólk til að nýta sér menntun og grípa þau tækifæri sem bjóðast, enda geti óvænt tækifæri mótað heilan starfsferil. Að þeirra mati er mikilvægt að vera tilbúinn að læra nýja hluti, takast á við áskoranir og feta nýjar leiðir þegar færi gefst.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila