
Framhaldsskólanemar vilja aukna kennslu og fræðslu um gervigreind, jöfn tækifæri til menntunar og að tryggt verði að ný tækni sé nýtt með ábyrgum hætti. Þetta voru meðal helstu skilaboða nemenda á Vísinda- og nýsköpunarþingi 2026 sem haldið var í Grósku.
2 nemendum frá hverjum framhaldsskóla landsins var boðið á þingið til að ræða framtíð Íslands við fulltrúa vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda.
Markmiðið var að gefa ungu fólki tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun stjórnvalda í vísindum og nýsköpun.
Vilja læra meira um gervigreind
Nemendurnir unnu í hópum að tillögum um framtíðina og ræddu meðal annars menntun, færni framtíðarinnar, gervigreind, nýsköpun, atvinnulíf, lífsgæði, loftslagsmál og sjálfbærni.
Aukin kennsla og fræðsla um gervigreind var meðal þeirra hugmynda sem komu fram.
Nemendurnir lögðu jafnframt áherslu á að ný tækni yrði nýtt með ábyrgum hætti og að mannlegir eiginleikar á borð við sköpunarkraft og gagnrýna hugsun héldu mikilvægi sínu þrátt fyrir hraða tækniþróun.
Jöfn tækifæri til menntunar voru einnig meðal þeirra mála sem nemendur lögðu áherslu á.
Ræddu hvernig hugmyndir verða að verðmætum
Sérfræðingar og frumkvöðlar úr íslensku atvinnulífi fluttu erindi fyrir nemendur um hvernig rannsóknir og nýsköpun geta orðið að raunverulegum lausnum og verðmætum.
Benedek Regoczi frá Sjávarklasanum fjallaði um betri nýtingu fisks og Högna Hringsdóttir, tæknistjóri hjá Össuri, ræddi hvernig skilningur á vandamálum og samtal við notendur getur leitt til nýrra lausna.
Berglind Johansen frá BIOEFFECT fjallaði um leiðina frá vísindum til verðmætasköpunar og Vala Hjördísardóttir um hvernig hægt er að nota ljósleiðara til að greina það sem gerist í umhverfinu, meðal annars í tengslum við eldfjöll og orku.
Finnur Pind frá Treble Technologies sagði frá uppbyggingu fyrirtækisins og þeirri áskorun að kenna gervigreind að „hlusta“.
Nemendur spurðu um tilgang og siðfræði
Í pallborðsumræðum fengu nemendurnir að beina spurningum til frumkvöðla og sérfræðinga um nám, störf, vísindi og nýsköpun.
Einnig var rætt um tilgang og siðferðileg álitaefni.
Þar kom fram að leiðir fólks í gegnum nám og atvinnulíf væru ólíkar og nemendur voru hvattir til að prófa sig áfram, fylgja áhugasviðum sínum og vera óhræddir við að fara nýjar leiðir.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra opnaði þingið með myndbandsávarpi en Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hafði tekið á móti nemendum daginn áður.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, tók síðan við niðurstöðum nemendanna og flutti lokaávarp þingsins.
Tillögurnar fara til Vísinda- og nýsköpunarráðs
Hugmyndir nemendanna verða teknar saman og lagðar formlega fyrir Vísinda- og nýsköpunarráð.
Þar verða meðal annars teknar saman helstu spurningar, áskoranir og tillögur framhaldsskólanemanna og eiga niðurstöðurnar að nýtast við áframhaldandi stefnumótun og undirbúning Vísinda- og nýsköpunarþings 2027.
Þingið tengist stefnu stjórnvalda um vísindi, tækniþróun og nýsköpun til ársins 2035 og atvinnustefnu Íslands til sama árs.
