Framkvæmdum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala lýkur að mestu 2029

Byggingaframkvæmdum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut er ætlað að ljúka að mestu í árslok 2029. Uppbygging Landspítala stendur yfir til ársins 2031 og nær einnig til framkvæmda við Grensás, Sjúkrahúsið á Akureyri og bráðamóttökuna í Fossvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Stjórn Nýs Landspítala ohf. og stýrihópur um framkvæmdir við Landspítala og önnur sérhæfð sjúkrahús hafa kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun verkefnisins.

Ytri vinnu við meðferðarkjarnann lokið

Mikil uppbygging hefur átt sér stað við Hringbraut og er allri ytri vinnu við nýja meðferðarkjarnann lokið. Innanhússframkvæmdir hafa staðið yfir á annað ár, meðal annars í kjöllurum og á legudeildum á tveimur efstu hæðum byggingarinnar.

Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdum ljúki að mestu í árslok 2029. Samhliða verklokum hefst yfirfærslutímabil þar sem undirbúið verður að hefja starfsemi í húsinu með nýjum tækjum og búnaði. Skipulagning flutninga er þegar hafin í samstarfi við erlenda sérfræðinga.

Innanhússfrágangi og uppsetningu tækjabúnaðar í nýju rannsóknahúsi á að ljúka á undan meðferðarkjarnanum.

Framkvæmdir standa til ársins 2031

Hringbrautarverkefnið nær auk meðferðarkjarnans og rannsóknahússins til bílastæða- og tæknihúss, bílakjallara og ýmissa stofnkerfa. Þar undir falla einnig framkvæmdir við götur, jarðveg og veitur auk sjúkrahótelsins sem tekið var í notkun árið 2019.

Heildarfjárfestingin vegna uppbyggingar Landspítala dreifist yfir langt tímabil. Framkvæmdatíminn er miðaður við árin 2010 til 2031 og samkvæmt heildaráætluninni er uppbyggingin fullfjármögnuð í gildandi fjármálaáætlun Alþingis.

Nýbyggingar við Grensás og á Akureyri

Nýr Landspítali vinnur jafnframt að sérhæfðum sjúkrahúsbyggingum utan Hringbrautar. Nýbyggingu fyrir endurhæfingarþjónustu Landspítala við Grensás á að ljúka í upphafi árs 2027.

Á Akureyri er fyrirhuguð nýbygging fyrir legu-, dag- og göngudeildir Sjúkrahússins á Akureyri og er áætlað að henni ljúki árið 2031.

Þá hefur verið unnið að stækkun matsdeildar bráðamóttökunnar í Fossvogi. Samkvæmt áætluninni á þeim framkvæmdum að ljúka fyrir haustið 2026.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila