
Miðstjórn Framsóknarflokksins krefst tafarlausrar stefnubreytingar í efnahagsmálum og leggur til að hækkanir kílómetragjalds, krónutölugjalda og kolefnisgjalds verði takmarkaðar við 2,5%. Flokkurinn vill jafnframt halda vaxtabótum óbreyttum árið 2027, hækka skattleysismörk umfram verðlag og tryggja aukinn stuðning við tekjulægri fjölskyldur og eldri borgara. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun sem samþykkt var á miðstjórnarfundi flokksins á Laugarbakka um helgina.
Í ályktuninni gagnrýnir Framsókn efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og telur tvö mikilvæg ár hafa glatast í baráttunni gegn verðbólgu og háum vöxtum. Flokkurinn hafnar því að jafnvægi í ríkisfjármálum verði náð með auknum álögum á heimilin og samdrætti í atvinnulífinu.
Vill takmarka gjaldahækkanir við 2,5%
Framsókn leggur til að hækkanir opinberra gjalda verði takmarkaðar og að ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins endurnýi samstarf um aðhald í gjaldskrárhækkunum, húsnæðisuppbyggingu og bætt lífskjör.
Flokkurinn telur að fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir bitni hlutfallslega þyngst á tekjulægri fjölskyldum og krefst þess að stjórnvöld birti heildarmat á áhrifum breytinganna eftir tekjum, fjölskyldugerð og búsetu áður en ákvarðanir verða teknar.
Jafnframt er lagt til að skattleysismörk hækki um 0,5% umfram verðlag og að fjárhæð barnabóta taki mið af verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.
Vaxtabætur verði greiddar áfram árið 2027
Í húsnæðismálum vill Framsókn tryggja áframhaldandi greiðslu vaxtabóta árið 2027 og halda endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði í 35%.
Flokkurinn lýsir áhyggjum af kólnandi húsnæðismarkaði og vill endurskipuleggja framboð húsnæðislána. Sérstök áhersla er lögð á að draga úr vægi verðtryggingar og gera fólki kleift að taka óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til langs tíma. Þá vill flokkurinn efla húsnæðissamvinnufélög til að auka fjölbreytni á húsnæðismarkaði.
Gagnrýnir fjármögnun þjónustu við börn og breytingar á námsmati
Miðstjórnin gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að tryggja sveitarfélögum ekki nægilegt fjármagn til að sinna þjónustu við börn, einkum þau sem glíma við fjölþættan vanda. Framsókn krefst þess að ríkið standi við gerða samninga og tryggi fjármögnun nauðsynlegs stuðnings.
Flokkurinn hafnar jafnframt vinnubrögðum barna- og menntamálaráðherra við innleiðingu nýs námsmats og hvetur sveitarstjórnir til að standa með kennurum og skólasamfélaginu. Breytingarnar þurfi að byggjast á faglegum undirbúningi og samráði fremur en einhliða ákvörðunum.
Hafnar nýjum álögum á ferðaþjónustu og breytingum á loftbrú
Framsókn leggst gegn aukinni skattheimtu á ferðaþjónustu og vill að virðisaukaskattur á aðgang að baðlónum haldist í 11%. Flokkurinn hafnar einnig svonefndum Bláskógaskatti við Gullfoss, Geysi og Þingvelli og leggur áherslu á að fjármögnun náttúruverndar og uppbygging innviða fari fram í samstarfi við heimafólk.
Miðstjórnin krefst þess jafnframt að ríkisstjórnin endurskoði fyrirhugaðar breytingar á loftbrú, sem veitir íbúum landsbyggðarinnar afslátt af innanlandsflugi. Flokkurinn telur núverandi fyrirkomulag mikilvægt til að jafna aðstöðu landsmanna.
Í ályktuninni er einnig lögð áhersla á fjárfestingar í samgöngum, orkumálum, menntun og heilbrigðisþjónustu um allt land. Styrkja þurfi rekstrarskilyrði smærri fyrirtækja og bænda, enda séu innlend matvælaframleiðsla og fæðuöryggi mikilvægir þættir þjóðaröryggis.
Vill sérstaka mánaðarlega uppbót fyrir tekjulægstu eldri borgarana
Framsókn tekur undir tillögu Landssambands eldri borgara um sérstaka mánaðarlega uppbót til þeirra sem hafa lægstar tekjur.
Flokkurinn leggur áherslu á að greiðslan verði útfærð þannig að hún skerði ekki aðrar greiðslur til viðkomandi. Markmiðið sé að bæta kjör þeirra eldri borgara sem eiga erfiðast með að standa undir nauðsynlegum útgjöldum.
Landsvirkjun verði áfram í þjóðareigu
Miðstjórnin áréttar að Landsvirkjun eigi áfram að vera í eigu þjóðarinnar og að tryggja verði faglega stjórnun og sjálfstæði fyrirtækisins.
Flokkurinn krefst aukins gagnsæis um kostnað og árangur opinberra ákvarðana og varar við niðurskurði á grunnþjónustu, forvörnum og fjárfestingum sem stuðla að aukinni framleiðni.
Í ályktuninni er jafnframt lýst áhyggjum af skorti á ábyrgð, gagnsæi og fagmennsku í stjórnmálum. Framsókn leggur áherslu á samvinnu og gagnkvæma virðingu og hafnar stjórnmálamenningu sem ýtir undir ótta og sundrungu.
Miðstjórnin vísar að lokum til árangurs flokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum og leggur áherslu á að efla starf hans og undirbúa þau verkefni sem fram undan eru.
